póstþjónusta og Byggðastofnun.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég get verið sammála hv. þingmanni um að ríkið sé oft allt of seint að draga sig út úr hlutunum, og auðvitað eru dæmi um það úr póstþjónustunni, til að tryggja samkeppni á markaði. Það er alveg hárrétt og við erum sammála þar og við höfum dæmin fyrir framan okkur. En þar blandast auðvitað ansi mörg atriði inn í. Það eru samkeppnissjónarmið, neytendavernd, byggðasjónarmið, þjónusta við dreifðar byggðir yfirleitt, hagnaður og ríkisstyrkir. Við erum í svolitlum línudansi um hvar eigi að draga mörkin. Þess vegna leggur nefndin til að starfshópur verði skipaður til að fara yfir þetta, sem er auðvitað nauðsynlegt. En svo breytist markaðurinn mjög ört og við þekkjum það. Bréf verða kannski ekki til, borin í hús, eftir tíu ár eða jafnvel fimm ár. Þetta breytist ört og auðvitað þurfum við að vera vakandi. Ég er sammála hv. þingmanni um að við verðum að vera vakandi fyrir breytingum og snögg að laga okkur að þeim.
Ég vil örlítið bæta við með spurningarnar, þ.e. varðandi samkeppnina. Auðvitað er samkeppni á Íslandi ýmsum takmörkunum háð, við sjáum það bara á matvælamarkaðnum, tryggingamarkaðnum og bankamarkaðnum og þannig mætti lengi telja. Það er einfaldlega mjög erfitt að tryggja heilbrigða samkeppni í svona litlu landi, jafnvel á Reykjavíkursvæðinu. Ég vil því spyrja hv. þingmann: Hvernig telur hún best að tryggja heilbrigða samkeppni, t.d. bara á Reykjavíkursvæðinu, á sviði póstþjónustu? Og svo líka hugmyndir hennar um það sem starfshópnum var falið að skoða, þ.e. hvort hægt væri að samnýta póstþjónustu og annan akstur, eins og segir í nefndarálitinu. Hver er sá akstur aðallega?