151. löggjafarþing — 112. fundur,  11. júní 2021.

póstþjónusta og Byggðastofnun.

534. mál
[15:39]
Horfa

Smári McCarthy (P) (andsvar):

Herra forseti. Já, þetta svarar eiginlega öllum spurningunum. Það skilur mig að vísu eftir með hugsunina: Já, ókei, þetta er góð stjórnskipuleg breyting á þessum málum en þetta hefur í rauninni nánast engin áhrif fyrir neytendur núna. En gott vel, það verður einhver starfshópur, flott. En hluti af ástæðunni fyrir því að ég kem hér upp og nefni þetta er að ég hef heyrt í svo mörgum sem hafa búið utan Íslands, hvort sem það eru Íslendingar sem hafa flutt út eða innflytjendur hér, sem hafa sagt að á Íslandi séu langflestir hlutir alveg frábærir, en póstþjónustan sé algerlega í molum. Ég hef upplifað þetta sjálfur eftir að hafa búið víða utan Íslands og hef oft velt því fyrir mér hvar nákvæmlega hnífurinn stendur í kúnni. Hluti af því er reglugerðafarganið og að það þurfi að bæta tolleftirlitsgjaldi á pakkasendingar og afgreiða virðisaukaskatt sérstaklega o.s.frv. Mörgu af því væri hægt að aflétta. En það er, held ég, ekki síður það að á Íslandi hefur það einhverra hluta vegna verið ákveðið, nánar tiltekið hafa einhverjir flokkar hér á Alþingi ákveðið það, að Ísland skuli fara þá leið sem var rosalega vinsæl í upphafi nýfrjálshyggjunnar að hætta að vera með góða, öfluga, ríkisrekna póstþjónustu, þó svo að hún kosti vissulega mikið — póstþjónusta er ekki ódýrt fyrirbæri — en hafi ákveðið að hætta því og dreift henni út um allar koppagrundir, í staðinn fyrir að vera með öfluga, miðlæga þjónustu fyrir helstu hluti og þar fyrir utan verið með, eins og er t.d. í Bandaríkjunum, öfluga pakkaþjónustu sem er þá einkavædd. Það er alveg hægt að láta þessa hluti virka saman. Ég átta mig ekki á því af hverju við erum í þessu ástandi, að þetta er einhvern veginn allt svo flókið og óáreiðanlegt vegna þess að við getum gert betur. Við höfum sýnt það öllum öðrum sviðum.