151. löggjafarþing — 112. fundur,  11. júní 2021.

póstþjónusta og Byggðastofnun.

534. mál
[15:42]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég skil vandamálin sem hv. þingmaður bendir á og þekki alveg þessa umræðu. Ég hef samt ekki á tilfinningunni að ástæða þess að þetta sé erfitt við að eiga hér á Íslandi sé sú að horfið hafi verið að einhverju marki frá ríkisrekstrinum í þessu því að Pósturinn er auðvitað ríkisfyrirtæki og einkafyrirtæki hafa lengi verið viðloðandi á þessum markaði, sérstaklega pakkadreifingarfyrirtækin. Án þess að ég eigi svar þá myndi ég halda að smæð markaðar og dreifing sé verulegt atriði í þessum efnum. Þar sem ég dvel oftast í útlöndum er í hverfi þar sem búa 300.000 manns. Ég get án nokkurra vandræða labbað það hverfi þvert og endilangt á stuttum tíma, þannig að þetta er svo allt öðruvísi þjónustusvæði sem verið er að vinna með hérna. Ég hugsa að það sé nú frekar ástæða þess að það er erfitt að halda uppi viðlíka þjónustu og maður nýtur t.d. í stórborgum hvað afhendingu á bréfum og pökkum varðar og verðlagningu. Copenhagen Economics vann yfirgripsmikla skýrslu fyrir Íslandspóst fyrir sennilega þremur árum síðan, þar sem var verið að reyna að undirbyggja rökstuðning fyrir raunverulegum kostnaði við alþjónustu og þar fram eftir götunum. Ég held að það væri hollt fyrir þingið, næstu umhverfis- og samgöngunefnd, að taka það til skoðunar í þessu samhengi og þá með vísan í þá vinnu þess hóps sem nú er verið að leggja af stað með.