stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Mínar áhyggjur hvað þetta varðar snúa fyrst og fremst að því að hér á Íslandi er t.d. stórt fyrirtæki, sem er að fullu í eigu erlendra aðila, sem safnar fjárhagslegum upplýsingum um Íslendinga. Er þetta ekki eitthvað sem við þurfum að fara svolítið betur yfir? Svona upplýsingar geta nýst með ýmsum hætti, kannski þeim sem ættu í raun og veru ekki að hafa aðgang að þeim og það eru þekkt dæmi um að svona upplýsingar hafi lekið og valdið tjóni.
Er ekki þörf á því, hv. þingmaður, að við förum að skoða þessi mál? Það er nú líka þannig erlendis að menn hafa haft áhyggjur af því að fyrirtæki séu með þessum hætti að sneiða svolítið nálægt öryggishagsmunum þjóða þegar svo miklum upplýsingum á þessu sviði er safnað á einn stað, hjá fyrirtæki í eigu erlendra aðila. Þetta er mál sem ætti að mínum dómi að skoða. Þjóðaröryggisráð ætti a.m.k. að skoða hvort það sé einhver ástæða til þess að hafa varann á hvað þetta varðar, sérstaklega þegar kemur að eignarhaldinu. Þetta er innlegg inn í þessa umræðu sem mér þótti rétt að koma á framfæri.