151. löggjafarþing — 112. fundur,  11. júní 2021.

stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda.

625. mál
[16:52]
Horfa

Frsm. efh.- og viðskn. (Brynjar Níelsson) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég get alveg tekið undir það að það getur valdið okkur tjóni þegar einhverjir aðilar geta safnað einhverjum slíkum fjárhagslegum upplýsingum, og það getur vissulega valdið tjóni, margs konar tjóni, líka fyrir þjóðarbúið, ekki bara viðkomandi einstaklinga eða fyrirtæki. Það er alveg hárrétt og ég held við þurfum alltaf að vera vakandi, enda segja fróðir menn, og örugglega veit hv. þm. Smári McCarthy betur um það en ég, að netglæpir og meðferð upplýsinga sem menn nálgast með rafrænum eða stafrænum hætti er bara framtíðarvandamál (SMc: Og nútímavandamál.)— og nútímavandamál nú þegar og verður örugglega meira þegar fram í sækir. Þess vegna hef ég alltaf sagt: Við eigum að taka upp gömlu spjaldskrána. Hún var alltaf best.