stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda.
Herra forseti. Þetta eru réttmætar spurningar hjá hv. þm. Birgi Þórarinssyni. Stutta svarið er: Eftir að GDPR-tilskipunin var tekin upp hér snarbatnaði allt umhverfi persónuverndar gagnvart gagnavinnslu á Íslandi. Gagnavinnsla í skilningi GDPR er alveg skuggalega flókið fyrirbæri og það er svo ítarlega skilgreint að ég ætla ekki að fara út í það, jafnvel þó að ég gæti rifjað upp á augabragði allar skilgreiningarnar. Stutta útgáfan er: Ef fyrirtæki verða þess valdandi að upplýsingar leka út sem eiga að vera varðar undir skilyrðum persónuverndarlaga eins og þau koma fram í GDPR, er hægt að sekta þau fyrir allt að 10 milljónum evra eða 2% af heildarveltu á heimsvísu. Og fyrir stærri tilfelli er hægt að sekta fyrir allt að 20 milljónum evra eða 4% af heildarveltu á heimsvísu. Miðað er við hvor upphæðin er hærri. Það er því mjög hart tekið á þessu í gildandi lögum. Svo er alltaf matskennt hver nákvæmlega ber ábyrgð og hversu alvarleg ábyrgðin er. Auðvitað er hvert tilfelli fyrir sig skoðað þannig að allrar sanngirni sé gætt. Ég held að þessi mál séu bara nokkuð vel varin í lögunum. Aftur á móti er það annað vandamál, og ég þarf kannski að koma inn á það í síðara svari, (Forseti hringir.) að það er ekki nógu góð menning varðandi öryggismál á Íslandi enn sem komið er.