stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda.
Herra forseti. Hv. þingmaður kom akkúrat inn á það sem ég ætlaði að koma inn á í síðara andsvari, þ.e. öryggismálin hér á Íslandi. Það er gott að við séum að undirgangast regluverk sem kveður á um að fyrirtæki sæti sektum ef þau verða uppvís að lekum vegna þess að þeir geta valdið gríðarlegu tjóni. En út af fyrir sig er skaðinn náttúrlega skeður ef upplýsingar af þessu tagi leka. Þá skipta sektargreiðslur í raun og veru ekki máli. En þær eru náttúrlega til þess að koma í veg fyrir að svona hlutir gerist og til að fyrirtækin séu með þann búnað að þau tryggi að slíkt geti ekki gerst. Hins vegar er aldrei hægt að tryggja það.
Þá erum við líka komin að svolítið öðrum vinkli þegar kemur að öryggissjónarmiðunum. Þegar maður er með erlenda aðila, gagnaver eða stórt fyrirtæki í erlendri eigu sem safnar upplýsingum, þarf þá ekki eignarhaldið að vera mjög gagnsætt? Hverjir eru þessir erlendu eigendur sem eiga stóru fyrirtækin sem safna t.d. gögnum hér á landi, fjárhagslegum upplýsingum? Við þurfum að fá upplýsingar um það. Getur það ekki verið innlegg í þessa umræðu? Við þekkjum það bara að ákveðin ríki hafa verið mjög dugleg við að koma ýmsum röngum upplýsingum á framfæri, falsfréttum o.s.frv., t.d. í aðdraganda kosninga, og reynt að hafa ýmis áhrif.
Þannig að spurningin er kannski svona: Gæti hv. þingmaður komið aðeins betur inn á öryggisþáttinn sem hann ætlaði að gera og svo þetta erlenda eignarhald sem mér finnst við ekki vera (Forseti hringir.) nógu vakandi yfir hvaða áhrif getur haft?