151. löggjafarþing — 112. fundur,  11. júní 2021.

stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda.

625. mál
[17:08]
Horfa

Smári McCarthy (P) (andsvar):

Herra forseti. Þetta er alveg rétt, en áttum okkur á því á sama tíma varðandi erlenda eignarhaldið að ekki er hægt að kaupa brauð á Íslandi án þess að það hafi verið bakað úr hveiti sem kemur frá útlöndum. Við erum háð öðrum löndum og það á jafnmikið við í stafrænum samskiptum og þjónustu og þegar kemur að vörum og annars konar þjónustu. Við verðum að átta okkur á að heimurinn er allur samofinn. Ísland er kannski eyland en það er ekki eyland í þessu alþjóðakerfi. Við verðum að búa til okkar regluverk og okkar væntingar í samræmi við þetta allt saman. Þar komum við einmitt inn á öryggisþættina. Ég valdi Covid.is af því að það er vefur sem fjölmargir Íslendingar hafa farið inn á síðasta árið. Það er vefur sem haldið er úti af ríkinu, af heilbrigðisráðuneytinu, ef ég er ekki á villigötum, en þegar ég skoða hann sé ég að það eru fimm mismunandi, það sem kallað er með leyfi forseta, „trakkerar“, stafræn verkfæri sem grennslast fyrir um hverjir nota síðuna. Allir eru þeir erlendir. Ég sé að síðan er hlaðin upp frá tíu mismunandi vefsvæðum og öll nema eitt eru utan Íslands. Og þetta er vefur sem er rekinn af íslenska ríkinu. Þegar við tölum um persónuvernd íslenskra borgara þá er liður í því að vefir á vegum hins opinbera eiga ekki að leyfa bandarískum stórfyrirtækjum að njósna um þá sem skoða vefina. Það er bara algjört grundvallaratriði. Síðan getum við farið að tala um hvernig gögnin eru nýtt og þar fram eftir götunum. En okkur vantar þá menningu, herra forseti, (Forseti hringir.) að horft sé til þess hverjir græða á upplýsingunum um borgarana.