slysatryggingar almannatrygginga.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og auðvitað fagna ég áhuga hv. þingmanns og met það mikils að hann beri hag slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fyrir brjósti. Það er hárrétt hjá þingmanninum að margt í þeirra starfi er mjög áhættusamt, skulum við segja, og í vissum tilfellum ekki nokkur leið að komast undan þeim hættum sem starfinu fylgja. Það er hárrétt. En það er þannig í mjög mörgum öðrum störfum líka. Þess vegna held ég að upptalning, jafnvel þótt í dæmaskyni væri, geti verið varhugaverð þegar farið er út í að telja upp starfsstéttir. Ég held einmitt að ég muni ekki nefna í dæmaskyni hér í ræðustóli Alþingis hvaða aðrar starfsstéttir geti heyrt þar undir vegna þess að þá fara menn að tína til að þessi hafi verið nefnd en ekki hin, en fjölmargar aðrar starfsstéttir eru undir verulegu álagi í starfi. Til að mynda eru þekktar vissar tegundir lungnaæxla sem finnast bara í námuverkamönnum og ég treysti mér til að nefna það vegna þess að námuverkamenn eru afar fáir á Íslandi, það er afar ólíklegt að það komi til. Ég held að það sé miklu skynsamlegra að telja það upp í reglugerð, líka vegna þess að þetta breytist frá tíma til tíma. Sjúkdómar sem við teljum í dag að séu atvinnusjúkdómar kunna að fá aðrar skýringar síðar og á sama hátt kunna sjúkdómar sem við áttum okkur ekki á í dag að séu atvinnusjúkdómar síðar að vera skilgreindir sem slíkir og þá er betra að hafa það í reglugerð en í lagatexta.