151. löggjafarþing — 112. fundur,  11. júní 2021.

lýðheilsustefna.

645. mál
[20:42]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Ólafur Þór Gunnarsson) (Vg):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um lýðheilsustefnu til ársins 2030. Nefndin fjallaði um málið á nokkrum fundum og fékk til sín gesti, eins og fram kemur í álitinu, auk þess sem henni bárust allmargar umsagnir.

Með tillögunni er lagt til að sett verði lýðheilsustefna til ársins 2030 og að horft verði til sjö meginviðfangsefna, líkt og þegar hefur verið gert í heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Með þeirri aðferð er notast við þá miklu vinnu sem þegar er að baki í heilbrigðisráðuneyti við gerð heilbrigðisstefnu, þó að eðli málsins samkvæmt séu önnur atriði sem huga þarf að. Í umsögnum og málflutningi gesta kom fram almennur stuðningur við að sett yrði lýðheilsustefna á þeim forsendum og með þau markmið sem fram koma í þingsályktunartillögu heilbrigðisráðherra um lýðheilsustefnu til ársins 2030. Þykir hún rökrétt framhald fyrri lýðheilsustefnu sem sett var árið 2016.

Við umfjöllun nefndarinnar komu fram áhyggjur nefndarmanna vegna athugasemda umsagnaraðila um skort á samráði þegar tillaga að stefnunni var í undirbúningi. Meiri hlutinn tekur undir þær áhyggjur og leggur áherslu á mikilvægi þess að samráð sé haft við þá sem eiga að framfylgja stefnunni. Þá leggur meiri hlutinn sérstaka áherslu á slíkt samráð þegar kemur að framkvæmd stefnunnar og þeim aðgerðum sem af henni leiðir. Þarna eru augljósir aðilar eins og til að mynda sveitarfélögin, þar með talin Félagsþjónusta sveitarfélaganna, íþrótta- og æskulýðsfélög og fleiri.

Vikið var að mikilvægi lýðheilsu og forvarna fyrir alla aldurshópa og minnt á hversu mikilvægt væri að hin almenna lýðheilsustefna tæki til allra landsmanna. Komið var inn á það líka, einkum í umsögn frá heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands, að þær aðgerðir sem farið var í byggðu á gagnreyndri þekkingu og samvinna við vísindasamfélagið og gagnreyndar rannsóknir væri mikilvæg. Þá var einnig bent á mikilvægt hlutverk heilsugæslunnar í þessu samhengi, þá ekki bara í beinum aðgerðum heldur líka í að upplýsa fólk og mennta og benda fólki á leiðir.

Fram komu nokkrar áhyggjur af því að kostnaðarauki myndi fylgja sem myndi kannski lenda á þeim á sveitarfélögunum og þeim aðilum öðrum sem fylgja stefnunni eftir og fara í aðgerðir vegna hennar, og eðli málsins samkvæmt verður það þannig. Hins vegar er mikilvægt að taka fram að þessi stefna sem slík breytir auðvitað ekki í neinu verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga eða útgjaldaskiptingu sem er þegar fyrir hendi, þ.e. útgjaldaskiptingin milli þessara stjórnsýslustiga breytist ekki.

Áhrif lýðheilsustefnunnar á börn og ungmenni komu til umræðu og var í því sambandi vakin athygli á mikilvægi þess að huga heildstætt að málefnum barnafjölskyldna með það að markmiði að efla fjölskyldur og gera þær færari til að taka upp lífshætti sem þjóna lýðheilsumarkmiðum. Mikilvægt væri að hugað yrði að því við framkvæmd lýðheilsustefnunnar að hún tæki ekki einvörðungu til þeirra viðfangsefna sem falla undir starfssvið heilbrigðiskerfisins heldur yrði einnig hugað að fjölskyldu- og félagsmálum, eins og ég nefndi áðan. Í þessu sambandi var fjallað um samstarf og samskipti fjölskyldna, skóla og heilbrigðiskerfis, æskulýðsstarfs o.s.frv. Fram kom að mikilvægt væri að þróaðar yrðu haldbærar aðferðir við að meta ávinning af ráðstöfunum í samræmi við stefnuna og í því samhengi væri mikilvægt að horfa bæði til fjárhagslegs og félagslegs ávinnings. Nefnd voru „mælaborð“ sem unnt væri að nota til að fylgjast með og birta niðurstöður mælinga. Slík mælaborð eru þegar í notkun og/eða þróun og var bent á að mikilvægt væri að menn reyndu eftir megni að nota slík verkfæri til að hjálpa stefnunni áfram.

Óhjákvæmilega var komið inn á þá þróun aldursskiptingar sem er að verða í samfélaginu og hvaða áhrif það hefði í fyrirsjáanlegri framtíð. Þess vegna skiptir miklu máli að stefnan skilaði árangri, til að mynda í heilsu og lýðheilsu eldra fólks á næstu áratugum. Enn fremur var bent á að mikilvægt væri að haga aðgerðum þannig að gert yrði ráð fyrir því að allir landsmenn nytu þeirra aðgerða sem lýðheilsustefnan kynni að leiða til og hefðu tækifæri til að tileinka sér þau gæði sem henni fylgdu. Til þess að svo megi verða þarf við framkvæmdina að huga að kyni og kynvitund, uppruna og málakunnáttu, fötlun, stöðu gagnvart vinnumarkaði, efnahag og mörgu öðru er varðar aðstöðu almennings til að tileinka sér það sem lýðheilsustefnan hefur upp á að bjóða.

Meiri hlutinn tekur undir þessar ábendingar og telur að hin víðtæka og almenna lýðheilsustefna sem innleidd verður samkvæmt þingsályktunartillögunni muni snerta mjög mörg svið samfélagsins og leiða til nýrra aðgerða og stefnumörkunar á ýmsum sviðum. Þar muni skapast vettvangur til nýs samstarfs og tækifæri gefast til að huga sérstaklega að lýðheilsumálum ýmissa hópa og svæða sem mikilvægt er að verði vel nýtt. Meiri hlutinn ítrekar mikilvægi þess að víðtækt samráð verði haft við hlutaðeigandi, því að þannig má ætla að best samstaða náist um þessa mikilvægu stefnu.

Að þessu virtu leggur meiri hlutinn til að tillagan verði samþykkt óbreytt.

Lilja Rafney Magnúsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifar undir álit þetta í samræmi við 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis. Helga Vala Helgadóttir skrifar undir álit þetta með fyrirvara.

Meiri hlutinn ítrekar mikilvægi þess að víðtækt samráð verði haft við hlutaðeigandi því að þannig má ætla að best samstaða náist um þessa mikilvægu stefnu.

Að þessu virtu leggur meiri hlutinn til að tillagan verði samþykkt óbreytt.

Undir álitið rita eftirtaldir hv. þingmenn: Helga Vala Helgadóttir formaður, Ólafur Þór Gunnarsson, Ásmundur Friðriksson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Lilja Rafney Magnúsdóttir og Vilhjálmur Árnason.