þjóðkirkjan.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni og vil koma aðeins inn á 10. gr. frumvarpsins sem fjallar um biskupsembættið. Í frumvarpinu segir reyndar biskupsumdæmið og ég mun víkja nánar að mikilvægi þess að það verði biskupsembættið.
Í 10. gr. segir, með leyfi forseta:
„Ísland er eitt biskupsdæmi. Um biskupskjör fer samkvæmt starfsreglum kirkjuþings, sbr. 1. mgr. 8. gr.
Biskup Íslands fer með yfirstjórn þjóðkirkjunnar eftir því sem kirkjuþing mælir nánar fyrir um.
Biskup Íslands gætir einingar kirkjunnar og hefur tilsjón með kristnihaldi, kenningu kirkjunnar og þjónustu.“
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir breytingartillögu og hún hljóðar þannig að 2. mgr. 10. gr. orðist svo: Biskup Íslands gegnir æðsta embætti þjóðkirkjunnar og fer með yfirstjórn hennar eftir því sem kirkjuþing mælir nánar fyrir um.
Breytingin felst í því að bæta við orðunum æðsta embætti þjóðkirkjunnar. Með breytingum á lögum um opinbera starfsmenn 2019 var kaflinn um embættismenn á vegum kirkjunnar felldur úr lögunum. Þá var ákveðið að embættismenn kirkjunnar hefðu hvorki skyldur né réttindi sem opinberir starfsmenn ríkisins. Þeir höfðu reyndar verið tilgreindir í lögunum á einhvers konar undanþáguákvæði frá því að sá aðskilnaður ríkis og kirkju varð sem fólst í þjóðkirkjulögum frá 1997. Með samsvarandi breytingu á þjóðkirkjulögum árið 2019 var orðið embætti fellt úr lögunum en starf sett í staðinn. Með því gegndi biskup Íslands ekki lengur embætti heldur sinnti starfi og biskupinn fékk ekki embættistitil við það að fá aðild að lögum um opinbera starfsmenn. Biskup Íslands hefur verið embætti frá því að Ísleifur Gissurarson var á Alþingi valinn biskup Íslands og síðan vígður í Bremen 1056. Rökrétt er að álykta að þegar biskup Íslands er, eins og sjálfsagt er, felldur úr lögum um opinbera starfsmenn ríkisins gegni hann eða hún aftur eins og var æðsta embætti þjóðkirkjunnar og beri skyldur sem slíkur gagnvart þjóðinni og öllum stjórnvöldum hennar.
Ætla má að kirkjuþingsfulltrúar og önnur stjórnvöld þjóðkirkjunnar hafi metið það svo að kirkjunni væri ekki heimilt að nota hugtakið embætti vegna þess sem tilgreint er í lögum um embættismenn ríkisins, þ.e. að ástæðan fyrir því að nefna embætti biskups og prestsembætti hafi einungis verið sú að þeir væru embættismenn að lögum, samanber lög um opinbera starfsmenn. Þetta má t.d. sjá á þeim breytingum sem gerðar voru á lögum um þjóðkirkjuna árið 2019. Nú segir í lögunum:
„Kjörgengur til biskupsþjónustu er hver guðfræðikandídat sem fullnægir skilyrðum til þess að gegna prestsþjónustu í þjóðkirkjunni.“
En fyrir breytinguna hljóðaði ákvæðið svo:
„Kjörgengur til biskupsembættis …“
Þannig að við sjáum að búið er að breyta þessu í biskupsþjónustu en það var áður biskupsembætti.
Ég held áfram:
„Kjörgengur til biskupsþjónustu er hver guðfræðikandídat sem fullnægir skilyrðum til þess að gegna prestsþjónustu í þjóðkirkjunni.“
Enn fremur var embætti biskups tilgreint þannig í 15. gr. þeirra laga um staðgengil biskups Íslands:
„Í forföllum biskups Íslands kveður hann þann vígslubiskup sem eldri er að biskupsvígslu til þess að gegna embætti sínu um stundarsakir.“ — Og þarna kemur orðið embætti fyrir aftur. — „Hið sama gildir sé biskup Íslands vanhæfur til meðferðar einstaks máls sem undir hann ber að lögum.“
Enn fremur var ákvæðið svo:
„Nú fellur biskup Íslands frá eða lætur af embætti og skal þá sá vígslubiskup, sem eldri er að biskupsvígslu, gegna embætti hans þar til biskupskjör hefur farið fram og nýr biskup Íslands hefur fengið skipun í embætti sitt.“
Hér er þess að gæta að embætti biskups Íslands var stofnað af Alþingi. Þó svo að margt hafi breyst síðan og vilji sé fyrir verulega minnkandi tengslum ríkis og kirkju og hlutfall þjóðkirkjufólks af heildarfjölda landsmanna hafi minnkað er þjóðkirkjunnar getið í stjórnarskrá lýðveldisins. Alþingi mun um ókomna framtíð þurfa að tryggja þjóðkirkjunni og annarri starfsemi trúfélaga í landinu lagaramma á grundvelli almenns trúarbragðaréttar.
Biskupsembættið er elsta embætti Íslands sem haldist hefur frá upphafi með því að það var fyrst samþykkt á Alþingi að það væri embætti allrar þjóðarinnar. Þó að farið hafi verið eftir reglum rómversk-kaþólsku kirkjunnar og staðfesting á vali biskups hafi komið frá páfanum í Róm voru biskupar ekki einungis sendir og skipaðir af páfa eins og tíðkaðist heldur valdir á Alþingi, a.m.k. allt fram á 14. öld. Sú breyting varð á skipan biskupa með siðbreytingunni á 16. öld og með innleiðingu einveldisins á 17. öld að konungur ríkisins fékk æðstu völd í málefni kirkjunnar eins og í öllum öðrum málefnum ríkisins en biskupar á Íslandi héldu í flestum greinum óbreyttum embættisskyldum og inn á við til safnaðanna nutu þeir einnig mikils frjálsræðis gagnvart konungi allt fram á 18. öld. Með stjórnarskránni 1874 þegar trúfrelsi var innleitt og hin evangelísk-lúterska kirkja var gerð þjóðkirkja á Íslandi varð sú breyting á embætti biskups að biskupinn varð embættismaður þjóðarinnar en ekki konungs og færðist þannig aftur til hinnar upphaflegu stöðu. Þessi staða hélst óbreytt við stofnun lýðveldisins 1944.
Á bls. 14 í greinargerð með frumvarpinu sem við ræðum hér segir um 3. gr., með leyfi forseta:
„Prestar og djáknar, sem annast hina vígðu þjónustu, starfa á grundvelli köllunar og vígslu og eru þeir þjónar kirkjunnar sem vígjast til embættis. Þeir vinna biskupi heit um að inna þjónustu sína af hendi á grundvelli játninga og skipana kirkjunnar. Á grundvelli þess er hinum vígða þjóni veitt ábyrgð á grundvallarþáttum í þjónustu þjóðkirkjunnar og hann sendur með það umboð. Vígsla biskups er lykillinn að því að geta gegnt þjónustu í kirkjulegri merkingu. Prestar sem gegna föstu prestsstarfi í þjóðkirkjunni lúta tilsjón biskups Íslands. Þá lúta enn fremur þeir prestar, sem gegna launuðu starfi hjá öðrum en þjóðkirkjunni, svo sem á sjúkrastofnunum og hjúkrunarheimilum, tilsjón biskupsins.“
Herra forseti. Aðeins nánar um 10. gr. frumvarpsins:
„Segja má að starf biskups Íslands falli með sama hætti undir innra starf kirkjunnar og starf vígslubiskupa, en þar sem biskup Íslands er í forsvari fyrir þjóðkirkjuna þykir rétt að tilgreina starf hans í lögum eins og gert er um alla aðra forstöðumenn í lögum um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög.
Í 2. mgr. er kveðið á um að biskup Íslands fari með yfirstjórn þjóðkirkjunnar eftir því sem kirkjuþing mælir nánar fyrir um. Biskup hefur í starfi sínu sér til fulltingis við framkvæmd stjórnunar þjóðkirkjunnar, fyrir utan kirkjuþing, m.a. forstöðumenn kirkjulegrar starfsemi, stjórnir kirkjumiðstöðva, sóknarnefndir, kirkjugarðsstjórnir, Kirkjugarðaráð og stjórnir ýmissa sjóða. Biskup Íslands er æðsti yfirmaður stærsta trúfélags þjóðarinnar og eru verkefni biskups margþætt. Í gildandi lögum eru sérstök ákvæði um verkefni og stöðu biskups, þar með talið um sérstöðu biskups í kirkjustjórninni. Í samræmi við meginstefnu frumvarpsins þar sem áhersla er lögð á að regluverk kirkjunnar verði mótað af kirkjuþingi í stað löggjafar mun það verða verkefni kirkjuþings að kveða á um stöðu og verksvið biskups Íslands.“
Í 3. mgr. er tiltekið að eitt af hlutverkum biskups Íslands sé að gæta einingar kirkjunnar en það er nú tilgreint til viðbótar þeim hlutverkum sem tilgreind eru í gildandi lögum, þ.e. að hafa tilsjón með kristnihaldi, kenningu kirkjunnar og þjónustu hennar í landinu. Með einingu kirkjunnar er átt við að biskup gæti kenningarinnar og boðskapar fagnaðarerindis. Um einingu þjóðkirkjunnar er fjallað í samþykktum um innri málefni hennar.
Kirkjurréttur Jóns Péturssonar frá 1890 gerir vel grein fyrir embætti biskups og tengslum þess við löggjöf og við Alþingi. Þar segir m.a. á bls. 29–30, með leyfi forseta:
„Áður enn landið kom undir konung, hafði alþingið fullkomið löggjafarvald í öllum málefnum hjer á landi, bæði veraldlegum og andlegum. Biskuparnir voru formenn kirkjunnar, og voru því álitnir sem höfuð landsins í öllum andlegum málefnum, en löggjafarvaldið í málefnum þessum var þó hjá alþinginu […] en biskuparnir gátu eigi heldur á hinn bóginn gefið nein lög, án þess þau væri samþykkt af alþinginu, og þetta fyrirkomulag viðhjelzt allt fram að siðaskiptunum, og breyttist ekki við það, að landið kom undir konung, því hann fjekk eigi neitt vald yfir stjórn kirkjunnar, nje löggjafarvald í hennar málefnum; aðeins gat hann varið landsmenn fyrir ólöglegum ágangi klerkanna.“ — Ef svo má að orði komast. — „Þar á mót urðu nú konungarnir, þá er landið kom undir konung, formenn og höfuð landsins í allri veraldlegri stjórn, á sinn hátt, og biskuparnir voru það í hinum andlegu málefnum þess.“
Enn fremur segir á bls. 46 í Kirkjurétti Jóns Péturssonar:
„Að vígja til andlegs embættis er og í reglunni biskupsins eins, en þegar biskupslaust verður, verður landshöfðinginn […] að setja einhvern prest til að gegna biskups embættinu, uns nýr biskup tekur við því.“
Og enn segir á bls. 165 um biskupinn:
„Biskupinn er hinn æðsti andlegi embættismaður“ — og ég ítreka embættismaður — „í landinu.“
Af þessu má sjá að lögin um opinbera starfsmenn höfðu engin áhrif á sögu og notkun hugtaksins embætti. Enn fremur er augljóst að ekki er hægt að einskorða hugtakið við opinbera embættismenn ríkisins, einfaldlega vegna þess að félagasamtök ýmiss konar hafa sín eigin embætti óátalið og án þess að valda nokkrum glundroða.
Saga og hefðir, herra forseti, eru dýrmætar eignir sérhvers samfélags, rétt eins og menning þess. Hugtakið embætti í kirkjunni hefur sérstaka merkingu sem byggir á guðfræði hennar. Almennt séð er hugtakið í kirkjulegu samhengi fyrst og fremst tengt hugtökunum þjónustu, ábyrgð, umsjón og forystu, rétt eins og annars staðar þar sem það kemur fyrir og er að því leyti ótengt kirkjunni. Starf er aftur á móti fyrst og fremst framkvæmd verkefna sem tilteknir aðilar fela sínu starfsfólki að sinna. Því má álykta að ákveðin grundvallarbreyting eigi að verða á hlutverki biskups kirkjunnar með því að fella niður hugtakið embætti biskups og breyta því í starf biskups. Ætla má að ábyrgð biskups til andlegrar forystu í kirkjunni og umsjónarskylda biskups gagnvart kenningum og siðum hennar hafi þá ekki lengur þann styrk sem biskupsembættið hefur haft í kirkjunni, allt frá frumkirkjunni og í samhengi Íslands í meira en þúsund ár. Þessi áhersla kemur vel fram í greinargerðinni með frumvarpinu þar sem segir í umfjöllun um 10. gr., með leyfi forseta:
„Í samræmi við meginstefnu frumvarpsins þar sem áhersla er lögð á að regluverk kirkjunnar verði mótað af kirkjuþingi í stað löggjafar mun það verða verkefni kirkjuþings að kveða á um stöðu og verksvið biskups Íslands.“
Í kirkjulegu samhengi, herra forseti, er hugtakið embætti ekki aðeins lagalegt hugtak eins og það er í lögunum um opinbera starfsmenn heldur guðfræðilegt og kirkjufræðilegt. Það er sameign innan þess alþjóðlega kirknasamfélags sem þjóðkirkjan er hluti af. Þjóðkirkjan mun því eftir sem áður ganga út frá sínum sögulegu embættum eins og hver önnur félagasamtök.
Að þessu sögðu, herra forseti, er hér, eins og ég sagði í upphafi, lögð til sú breytingartillaga að vegna sögu sinnar í samfylgd þjóðarinnar og á ábyrgð Alþingis allt frá kristnitöku verði biskupsembættið, embætti biskups í þjóðkirkjunni, tryggt með lögum.