151. löggjafarþing — 112. fundur,  12. júní 2021.

félög til almannaheilla.

603. mál
[00:42]
Horfa

Frsm. efh.- og viðskn. (Ólafur Þór Gunnarsson) (Vg):

Herra forseti. Það er mér sönn ánægja að flytja hér nefndarálit um frumvarp til laga um félög til almannaheilla. Málið er nú til umræðu í fjórða sinn á Alþingi og hillir undir að náist að ljúka þessu máli. Nefndin öll var nokkuð sammála í málinu og allir nefndarmenn hv. efnahags- og viðskiptanefndar rita undir nefndarálitið. Með frumvarpinu er lagt til að gildi taki ný heildarlög þar sem komið verði á nýju félagaformi um félög til almannaheilla, og því mótaður lagarammi þar sem fram komi reglur um stofnun, meginefni samþykkta, félagsaðild, ákvarðanatöku og stjórnun slíkra félaga.

Eins og ég gat um hefur þetta mál nokkrum sinnum áður komið til umræðu hér á þingi og það eru nokkur kjarnaatriði sem hafa verið mjög mikið til umræðu og eru reifuð í nefndarálitinu, til að mynda þetta með hæfisskilyrði stjórnarmanna sem heill kafli í nefndarálitinu fer undir. Þar rekur nefndin sig í raun að þeirri niðurstöðu að þau hæfisskilyrði sem eru tilgreind í frumvarpinu, og snúa aðallega að því að tryggja að þeir sem taka ákvarðanir um rekstur félaga, og hafa þar með áhrif á fjárhagslegar ákvarðanir félaga, þurfi að vera fjár síns ráðandi, að í rauninni sé eiginlega ekki hægt, eftir vangaveltur og umræður og bestu manna ráð, að leiða sig að neinni annarri niðurstöðu og það er niðurstaða nefndarinnar.

Nefndin leggur til nokkrar breytingartillögur sem eru í skjalinu. Í fyrsta lagi í stofnsamningum um 4. gr. en í 3. mgr. 4. gr. er kveðið á um að stofnsamningur skuli vera undirritaður af stofnendum félags. Þetta var nokkuð rætt í nefndinni og kannski sérkennilegt að til að mynda í stórum félögum þurfi einhvers konar undirritun frá öllum stofnfélögum. Það er ákveðið að einfalda þetta þannig að nefndin gerir breytingartillögu þar um.

Hvað varðar samþykktirnar í 5. gr. er kveðið á um að tilgreina skuli í samþykktum félaga til almannaheilla tilgang félagsins en í umsögn Skattsins kemur fram að ætla verði að félagið sé ekki drifið áfram af sjálfboðavinnu einni saman og í þeim tilvikum þyrfti að geta þess með hvaða hætti staðið skuli að fjáröflun til starfseminnar og hvernig skuli staðið að ráðstöfun þeirra fjármuna sem aflað hefur verið, og nefndin gerir breytingartillögu í þessa veru.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands lagðist í umsögn sinni gegn því að málið yrði samþykkt í núverandi mynd og það fór nokkur umræða og vinna í það innan nefndarinnar að finna lendingu sem gæti náð utan um athugasemdir þaðan. Það er að töluverðu leyti gert í þeirri breytingartillögu sem gerð er við 29. gr., þ.e. að það er ákveðið að heimilt sé að skrá félög skv. 5. gr. íþróttalaga í almannaheillafélagaskrá, þótt ekki sé tekið fram í samþykktum þeirra að þau séu félög til almannaheilla, og tilkynningu um slíkt skal senda til almannaheillafélagaskrár.

Ég ætla ekki að fara ítarlegar í þetta. Nefndarálit liggur fyrir og er ágætt. En það er, eins og ég nefndi hér í upphafi, gleðilegt að allir nefndarmenn skrifa undir álitið. Það eru hv. þingmenn Óli Björn Kárason formaður, Jón Steindór Valdimarsson, Brynjar Níelsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Bryndís Haraldsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson og Þórarinn Ingi Pétursson og síðan Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Smári McCarthy. Tveir síðastnefndu skrifa undir álitið með fyrirvara.