gjaldeyrismál.
Herra forseti. Ég flyt hér nefndarálit um frumvarp til laga um gjaldeyrismál frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar. Nefndin hefur fjallað um málið, eins og fram kemur í nefndarálitinu, og fengið til sín gesti, auk þess sem umsagnir bárust. Með frumvarpinu er lagt til að ný heildarlög um gjaldeyrismál öðlist gildi og að gildandi lög um gjaldeyrismál, nr. 87/1992, og lög um meðferð krónueigna, sem háðar eru sérstökum takmörkunum, falli brott.
Það má segja að meginumræða nefndarinnar, stærsti hluti umræðunnar, hafi fjallað um III. kafla frumvarpsins, og þá sérstaklega 7. og 8. gr. þess sem fjalla í raun um þær heimildir sem Seðlabankinn eigi að hafa til að stjórna fjármagnsflæði til og frá landinu. Það var fljótt ljóst í nefndarstarfinu að mönnum þóttu þær heimildir sem lagðar voru til í frumvarpinu ríflegri en svo að gott þætti og því gerir nefndin tillögur um fjórar breytingar á þessum greinum, sérstaklega á 7. gr.
Í fyrsta lagi leggur meiri hlutinn til að í 1. mgr. ákvæðisins komi skýrt fram að einungis verði gripið til reglusetningar samkvæmt ákvæði um að hindra fjármagnsflutninga á milli landa í neyðaraðstæðum sem hafi í för með sér verulega hættu á að fjármálastöðugleika verði raskað af völdum óheftra fjármagnshreyfinga og ekki sé unnt að bregðast við með öðrum úrræðum.
Í öðru lagi leggur meiri hlutinn til að reglur samkvæmt ákvæðinu geti í hæsta lagi gilt í 60 daga og með því telur meiri hlutinn að stjórnvöldum sé tryggður möguleiki á að skjóta á skjótum inngripum telji þau að aðstæður krefji en jafnframt sé tryggt að takmörkun á fjármagnshreyfingum til lengri tíma sé háð samþykki löggjafans. Reynslan sýnir að Alþingi getur brugðist skjótt við aðstæðum með setningu laga. Telur meiri hlutinn því ljóst að innan 60 daga gildistíma reglna Seðlabankans veitist nægjanlegt svigrúm til að framlengja takmarkanir á fjármagnsflæði með lagasetningu ef þörf krefur.
Í þriðja lagi leggur meiri hlutinn til að b-liður 2. töluliðar 1. mgr. 7. gr. frumvarpsins, þar sem veitt er heimild til að setja reglur sem takmarka eða stöðva greiðslur milli landa vegna vaxtaverðbóta og samningsbundinna afborgana lána og skuldabréfa, falli brott.
Í fjórða lagi leggur meiri hlutinn til að í lokamálsgrein 7. gr. frumvarpsins verði kveðið á um skyldu ráðherra til að flytja Alþingi skýrslu þar sem fram komi rök fyrir nauðsyn setningar reglna samkvæmt ákvæðinu. Skýrsluna flytji ráðherra innan fjögurra sólarhringa frá setningu reglnanna eða svo fljótt sem verða má, sé Alþingi þá ekki að störfum. Aðrar breytingartillögur eru tæknilegs eðlis og er ekki ætlað að hafa efnisleg áhrif.
Að framansögðu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem ég hef hér rakið. Undir álitið skrifa hv. þingmenn Óli Björn Kárason, formaður nefndarinnar, Brynjar Níelsson, Bryndís Haraldsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson og Þórarinn Ingi Pétursson. Að öðru leyti vísa ég til álitsins sem liggur frammi og sé ekki ástæðu til að rekja það frekar hér.