151. löggjafarþing — 112. fundur,  12. júní 2021.

gjaldeyrismál.

537. mál
[00:55]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M):

Herra forseti. Ég skal ekki lengja umræðuna en það er óhjákvæmilegt að fjalla aðeins um þetta frumvarp um gjaldeyrismál sem, eins og fram hefur komið, felur í sér heildarendurskoðun á lögum á því málefnasviði. Það stendur þannig á, eins og jafnframt hefur verið rakið, að lagðar eru til mjög víðtækar heimildir til að hlutast til um frjáls viðskipti í landinu á sviði gjaldeyrisviðskipta. Þetta felst í 3. kafla frumvarpsins, 7. og 8. gr., þar sem Seðlabanka Íslands er heimilað, að fengnu samþykki ráðherra en án þess að krafist sé samþykkis Alþingis, að setja reglur sem takmarka eða stöðva fjármagnshreyfingar milli landa og gjaldeyrisviðskipti sem þeim tengjast, og svo er löng upptalning í framhaldi af því. Í annan stað varðar málið greiðslur milli landa og gjaldeyrisviðskipti sem þeim tengjast. Í þriðja lagi gjaldeyrisviðskipti milli innlendra og erlendra aðila o.s.frv. Í fjórða lagi viðskipti með og útgáfu fjármálagerninga og hlutafjár. Hér er því langur listi af heimildum sem faldar eru opinberri stofnun og lagðar í hendur embættismanna. Kveðið er á um að samþykki ráðherra sé nauðsynlegt. En eins og ég sagði áðan er ekki gert ráð fyrir því að Alþingi veiti samþykki sitt.

Herra forseti. Það er gagnlegt að líta aðeins í umsagnir sem fyrir liggja í þessu máli af hálfu samtaka í atvinnulífinu. Fram kemur að Samtök atvinnulífsins hafa áhyggjur af mögulegum afleiðingum þess að heimila Seðlabankanum með samþykki ráðherra að grípa til gjaldeyrishafta og að slík heimild verði færð varanlega í lög. Segir í umsögninni að af frumvarpinu að dæma virðist lítil tilraun hafa verið gerð til að meta neikvæðar afleiðingar þessa en að mati Samtaka atvinnulífsins geti efnahagslegur kostnaður, hvort sem muni reyna á heimildina eður ei, orðið mikill og varanlegur. Samtökin leggjast því alfarið gegn þessum áformum og í framhaldinu benda þau á að heimild sem þessi geti haft fælandi áhrif á erlenda fjárfesta vegna aukinnar óvissu um hvort treysta megi á að hægt verði að flytja fjármuni að og frá landinu.

Áfram segir að auðfengnar heimildir til hafta á fjármagnsflæði séu ekki til þess fallnar að auka traust erlendra fjárfesta á íslenskum fjárfestingarkostum. Minnt er á það að erlend fjárfesting getur styrkt efnahagslegar stoðir með því að stuðla að lægra vaxtastigi og veita aukin tækifæri til uppbyggingar. Er hvatt til þess, í umsögn Samtaka atvinnulífsins, að leitað verði leiða til að bæta orðspor Íslands, styrkja umgjörð og stoðir, hvetja til fjárfestingar í stað þess að letja og undir það skal tekið.

Í umsögn Samtaka atvinnulífsins segir ennfremur að ófullnægjandi ástæður hafi verið gefnar fyrir því að nauðsyn beri til að koma heimildinni varanlega fyrir í lögum. Minnt er á að fordæmi eru fyrir því að þing sé kallað saman með skömmum fyrirvara gerist þess þörf. Minnt er á að þegar þannig stóð á var heimild til að setja á höft, lík þeirri sem nú stendur til að leiða í lög, ekki til staðar eða fyrir hendi þegar gripið var til slíkra hafta síðast.

Ég vil sömuleiðis nefna meginathugasemdir sem koma fram í umsögn frá Viðskiptaráði. Þar er bent á að ekki virðist nægilega mikið hafa verið horft til þess hvaða áhrif frumvarpið og núverandi fyrirkomulag hefur, sérstaklega á erlenda fjárfestingu. Minnt er á að Ísland býr við einar mestu hindranir á erlendri fjárfestingu meðal OECD-ríkja og sú fullyrðing er studd með tölulegum gögnum í umsögninni. Sagt er að svara þurfi því hvort frumvarpið festi það ástand að Ísland búi við einar mestu hindranir á erlendri fjárfestingu meðal OECD-ríkja, hvort frumvarpið muni festa það frekar í sessi.

Þá segir í umsögn Samtaka atvinnulífsins að ekki sé þörf á ákvæði um víðtæk fjármagnshöft og að lágmarki ættu þau að vera háð samþykki meiri hluta Alþingis.

Hér hafa komið fram helstu atriði þessa máls í meginatriðum. Hér er um að ræða, er óhætt að segja, herra forseti, mjög víðtækar heimildir til inngripa. Í fyrsta lagi er þessi heimild veitt opinberri stofnun og lagt í hendur embættismanna, nánar til tekið seðlabankastjóra og aðstoðarseðlabankastjóra. Áskilið er að ráðherra veiti samþykki sitt en ekki er gert ráð fyrir öðru en að Alþingi verði upplýst um málið miðað við þá breytingartillögu sem hér liggur fyrir af hálfu meiri hluta hv. efnahags- og viðskiptanefndar innan fjögurra daga frá ákvörðun af þessu tagi.

Herra forseti. Það er nauðsynlegt að menn staldri við þegar svona tillaga liggur hér fyrir Alþingi um aðrar eins heimildir til inngripa og að það skuli vera gert með þeim hætti að það sé fært varanlega inn í lög. Við höfum reynslu af því að hafa ratað í aðstæður sem kölluðu á það að grípa þurfti til sams konar ráðstafana og hér er fjallað um. Þá var engin slík lagaheimild fyrir hendi og Alþingi brást við því og sinnti því máli eins og nauðsyn bar til. En það sem er uppi, m.a. í athugasemdum og ábendingum í umsögnum, er það að með þessari aðgerð er verið að senda skilaboð út í heim til þeirra sem kynnu að hyggja á fjárfestingar hér sem gætu orðið grundvöllurinn að auknum hagvexti og aukinni hagsæld í landinu, að skilaboðin sem þessir aðilar fá væru þau að þeir geti átt von á því að gripið verði til hafta af þessu tagi án þess að fullnægjandi ferill liggi þar að baki. Og þá á ég náttúrlega við að Alþingi hafi veitt samþykki sitt, og sömuleiðis það að slík heimild sé varanlega í lögum um gjaldeyrismál í landinu. Þetta er afar varasamt, herra forseti. Það verður að segjast eins og er.