gjaldeyrismál.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Ísleifssyni fyrir ræðuna og ég held einmitt að hann hafi hitt naglann á höfuðið með því að benda rækilega á að þetta er í raun eitt stærsta skref í átt til miðstýringar í mjög langan tíma eða allt frá því í byrjun sjöunda áratugar að víðtæk heimild var veitt. Svona víðtækar heimildir voru réttilega veittar í kringum síðasta hrun og þá með aðkomu þingsins. Ég vil taka undir þá mikilvægu ábendingu hv. þingmanns að það er mjög varhugavert að þessar víðtæku heimildir til hafta og í átt að miðstýringu séu veittar embættismönnum algerlega án aðkomu þingsins. Það tel ég mjög varhugavert. Ég er hins vegar sammála markmiðinu sem verið er að ná með frumvarpinu, sem er stöðugleiki, en ég veit að við hv. þingmaður erum kannski ekki sammála um leiðirnar. Þetta mál er birtingarmynd þess að ríkisstjórnin hefur gefist upp á ástandinu og í stað þess að leita leiða sem undirstrika frelsi til viðskipta þarf að veita Seðlabankanum þessa víðtæku heimild til að setja höft. Um þetta snýst málið, höft eða frelsi, og það er verið að velja þessa varhugaverðu leið hafta.
Mig langar að spyrja hv. þingmann, af því að hann nefndi réttilega erlenda fjárfestingu: Í könnunum hafa meira en 70% forstöðumanna nýsköpunarfyrirtækja talað um íslensku krónuna sem eina helstu hindrunina en gjalda alltaf varhuga við þegar gjaldeyrishöft eru sett, sérstaklega með tilliti til erlendra fjárfestinga. Telur hv. þingmaður að svona frumvarp geti haft veruleg áhrif á erlenda fjárfestingu og ekki síst nýsköpunarfyrirtæki sem þurfa sárlega á erlendri fjárfestingu að halda?