151. löggjafarþing — 112. fundur,  12. júní 2021.

gjaldeyrismál.

537. mál
[01:06]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og ég vil bara grípa boltann þar sem hún setti hann á loft með nýsköpunarfyrirtækin. Við þurfum sárlega á því að halda, herra forseti, að hér þróist og dafni kröftugur nýsköpunariðnaður. Nýsköpun er grundvöllur fyrir aukinni hagkvæmni og arðsemi og skilvirkni og er að því leyti til grundvöllur og undirstaða fyrir aukinni hagsæld í landinu. Menn verða því að hugsa dálítið vítt þegar menn eru að hafa uppi ráðagerðir af annarri eins stærð hvað varðar opinber inngrip og íhlutun í frjálst viðskiptalíf í landinu.

Hér eru mjög stórir hagsmunir undir og rétt að ítreka það og árétta, sem fram hefur komið, til að mynda í umsögnum sem liggja fyrir, að ekki hefur verið sýnt fram á nauðsyn þess að binda varanlega í lög heimildir af þessu tagi. Ég man mjög vel eftir því þegar fjármagnsviðskipti milli landa voru í rammgerðum höftum og ég man auðvitað þann langa aðdraganda sem þurfti til þess að losa um þau höft undir lok liðinnar aldar. Það er í fersku minni að það tók heil tíu ár að vinda ofan af höftunum sem sett voru í hruninu. Þetta er því auðvitað mjög varhugavert og menn verða að fara með mikilli gát.