151. löggjafarþing — 112. fundur,  12. júní 2021.

gjaldeyrismál.

537. mál
[01:09]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það tók hátt í tíu ár. Viðreisn var í stjórn í skamman tíma 2017 og það var akkúrat á þeim tíma sem síðustu höftunum var aflétt. Þetta tekur langan tíma. Ég man á sínum tíma, þegar ég var á þinginu 2009–2013, í EFTA-nefndinni, að þá var þetta líka undantekningarlaust það sem við vorum alltaf spurð um á vegum EFTA og EES: Hvenær ætlið þið að aflétta höftunum? Þetta er ein af grunnforsendunum fyrir okkur sem viljum vera virkir þátttakendur í EES, þ.e. frjálst flæði fjármagns. Þess vegna finnst mér það vera svo röng skilaboð, ekki að það komi mér á óvart verandi með þessa ríkisstjórn, að senda út þessa tóna um svona gríðarlega víðtækar heimildir til gjaldeyrishafta. Mun það koma í veg fyrir erlenda fjárfestingu? Nei, við vitum að það gerir það ekki. En þetta mun takmarka tækifærin. Ég hef verulegar áhyggjur af því hvaða áhrif þetta hefur fyrir nýsköpunarfyrirtækin. Við erum núna, ég held allir flokkar, að tala um að breikka þurfi kjölfestuna í íslensku efnahagslífi. Við erum með grunnundirstöðuatvinnuvegina eins og ferðaþjónustuna sem er að fara af stað aftur, sjávarútveginn og iðnaðinn, en við erum alltaf að tala um fjórðu stoðina og hún byggist fyrst og fremst á hugverkaiðnaði og nýsköpunarfyrirtækjum og þá verða þau að hafa tækifæri til þess einmitt að afla sér erlendra fjárfestinga.

Ég velti því líka fyrir mér, og vil spyrja hv. þingmann: Þeir fjárfestar sem eru á leiðinni nú þegar — ég hef tekið eftir því að í útboðinu varðandi Íslandsbanka gerir annar af tveimur erlendum fjárfestum ráð fyrir því að 7% gengishækkun verði á næsta ári, hann gerir ráð fyrir því í sínum forsendum. Telur hv. þingmaður að hugsanlega verði heimilt að loka þá fjárfestingu inni? Miðað við þær forsendur sem gefnar eru í þessu frumvarpi, hvað verður um þá erlendu fjárfestingu sem kemur núna inn eða er nú þegar inni ef verulegar breytingar verða á genginu eins og fjárfestar gera ráð fyrir?