151. löggjafarþing — 112. fundur,  12. júní 2021.

gjaldeyrismál.

537. mál
[01:11]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Það er hárrétt sem hv. þingmaður ræðir hér. Auðvitað verður að fjalla um áhrif þessa alls á gengi krónunnar. Við þekkjum t.d. af nýlegri reynslu að Seðlabankinn hefur beitt sér fyrir því að lífeyrissjóðirnir haldi aftur af fjárfestingum sínum á erlendri grundu. Nú er það þannig að þeir þurfa að setja í vinnu alveg ógrynni fjár á hverju ári, eins og menn þekkja. Við vitum það líka að hér eru ekki nema takmarkaðir fjárfestingarkostir sem henta lífeyrissjóðunum, auk þess sem það er af eðlilegum ástæðum nauðsynlegt fyrir þá að verja verulegum hluta af ráðstöfunarfé sínu í erlendar fjárfestingar. Seðlabankinn hefur haft áhyggjur af því að þetta verði til þess að veikja krónuna og hefur þess vegna haft uppi einhvers konar tilmæli til lífeyrissjóðanna í þessu efni um að halda aftur af sér í því. En nú sjáum við og þekkjum það af nýlegri reynslu að hér erum við með firnakröftuga atvinnugrein sem heitir ferðaþjónusta, sem verður náttúrlega þvílíkt gjaldeyrisskapandi þegar hún verður komin aftur á beinu brautina. Ekki er nokkur vafi á því í mínum huga að hún verður skjót og snörp í því efni og þá mun gjaldeyrir flæða inn. Það mun verða til þess fallið að styrkja gengi krónunnar. Það mun veikja samkeppnisstöðu íslenskra atvinnuvega sem eru í erlendri samkeppni þannig að það þarf að hugsa fyrir þessu öllu. Þetta er alveg hárrétt ábending hjá hv. þingmanni.

Ég ætla bara að ljúka þessu með því að segja, herra forseti: Höftin eru ekki skárri þó að þau fái nýja nafngift eins og er í frumvarpinu. Þau eru kölluðuð verndunarráðstafanir við sérstakar aðstæður.