151. löggjafarþing — 112. fundur,  12. júní 2021.

kosningalög.

339. mál
[01:14]
Horfa

Frsm. meiri hluta stjórnsk.- og eftirln. (Jón Þór Ólafsson) (P):

Forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp um kosningalög frá minni hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Megintilgangurinn með málinu í heild sinni er að taka saman fjóra lagabálka um kosningar og steypa þeim saman í einn lagabálk. Þegar við förum að breyta og þróa þetta betur, sem er líka fært landskjörstjórn sem hefur það verkefni að vera stanslaust að vinna í því, þá er það sem annars hefði verið gert í fernum lögum, hefði gleymst hér og þar og alltaf dregið meira og meira í sundur, komið í einn lagabálk þar sem breytingar eru samræmdar. Réttindi borgaranna, eins og uppfærslan á þeim er, skila sér þá inn í allar þessar kosningar sem eru þá kosningar til Alþingis, kosningar til sveitarstjórna, forsetakosningar og þjóðaratkvæðagreiðslur.

Nefndin hefur fjallað um málið í að verða sex mánuði. Þar að baki liggur margra ára vinna við gerð þessa frumvarps sem við höfum verið að ræða á 22 fundum í nefndinni. Við fengum 32 umsagnir og á fjórða tug gesta komu fyrir nefndina á þessum sex mánuðum. Það var mjög ánægjulegt hve góð samstaða náðist í nefndinni um meginmarkmiðið sem allir voru sammála um, að sameina þyrfti heildarlöggjöfina og jafnframt eru uppfærslur á ákveðinni réttindastöðu borgaranna, t.d. varðandi aðstoð og ýmsa þætti sem ég ætla að fara yfir hér. Ég vísa bara í nefndarálitið þar sem farið er yfir þá sem komu fyrir nefndina en fer í efnið.

Í umfjöllun nefndarinnar er talað um kosningarrétt þeirra sem eru búsettir erlendis. Frumvarpið eins og það kom til nefndarinnar var á þann hátt að þeir ættu að hafa 16 ár í staðinn fyrir átta eins og er í lögum í dag, þ.e. að kosningarrétturinn haldist þann tíma. En síðan hefur það verið þannig að eftir þessi átta ár hafa menn getað kært sig inn á kjörskrá, í fjögur ár í senn, í ótakmarkaðan tíma aftur og aftur, ótakmörkuð skipti. Þarna átti, eins og frumvarpið kom til nefndarinnar, að hækka það upp í 16 ár en síðan gætir þú ekki kært þig inn á kjörskrána. Nefndin var einhuga um að það myndi vera óásættanleg takmörkun á kosningarrétti þeirra sem sannarlega eru íslenskir ríkisborgarar eins og stjórnarskráin kveður á um. Þar af leiðandi héldum við því inni að fólk þarf ekkert að byrja að kæra sig inn fyrr en eftir 16 ár, þ.e. 16 ár eru viðmiðunartími, svo eftir það, eins og hefur verið, getur það kært sig inn á kjörskrána. Þeir Íslendingar sem búsettir eru erlendis missa ekki kosningarréttinn sinn, sama hve lengi þeir búa erlendis, og hafa áfram tækifæri til að kæra sig sífellt inn á kjörskrána.

Varðandi yfirkjörstjórnir kjördæma — hugmyndin, eins og frumvarpið kom til nefndarinnar, var sú að yfirkjörstjórnir kjördæma yrðu teknar út og að sveitarstjórnir sæju um kosningarnar. Það kom upp alls konar ágreiningur um það. Við tókum allar þessar umsagnir, settum þær mjög skilmerkilega upp og sáum að það var svo mikil andstaða við það þannig að við sameinuðumst um að skrifa yfirkjörstjórnir kjördæma aftur inn í kosningalögin. Það er það sem við höfum fyrir okkur hér í dag.

Framkvæmd atkvæðagreiðslna utan kjörfundar. Já, alveg rétt — það er þarna starfshópur sem verður skipaður til að fara sérstaklega yfir það. Með leyfi forseta:

„Meiri hlutinn telur rétt að skipaður verði starfshópur sem falið verði sérstaklega að taka til skoðunar og móta frekar fyrirkomulag atkvæðagreiðslna utan kjörfundar og leggur til að bætt verði við frumvarpið ákvæði til bráðabirgða þess efnis.“

Starfshópur mun fara yfir þetta og gera þetta að grunngerð. Við verðum að passa upp á það að þetta verði vel gert. Við töldum okkur ekki hafa tíma til að klára alveg þá vinnu þannig að sú vinna verður unnin í kjölfarið.

Varðandi skipun landskjörstjórnar komu fram ábendingar um hver ætti að skipa fulltrúa. Það var þá fært úr því að það ætti að vera samráðsvettvangur háskólans yfir í það að það væri frekar Samband íslenskra sveitarfélaga sem myndi skipa þann fulltrúa sem samráðsvettvangurinn hafði annars gert.

Slit kjörfundar — lítið atriði, átti að færa það úr því að slit kjörfundar væru kl. 10 um kvöld niður í kl. 9. Reykjavíkurkjördæmin og svo landsbyggðarkjördæmin eru dálítið ólík hvað þetta varðar, áherslur varðandi tímasetningar o.s.frv. Það varð ofan á að þarna myndum við halda því óbreyttu eins og það er í lögunum í dag og færa frumvarpið í þá átt. Kjörfundir standa því áfram til kl. 10.

Varðandi aðstoð við atkvæðagreiðslu þá er hún útvíkkuð. Í lögunum eins og þau eru í dag getur þú fengið aðstoð og þar af leiðandi getur kjósandi vikið frá hefðbundinni kosningaframkvæmd, ef hann er annaðhvort sjónskertur eða höndin er ónýt. Þarna er sem sagt um líkamlega fötlun að ræða. Þetta er víkkað út og nær yfir aðra fötlun og tryggir þá víðtækari tækifæri í þessu. Jafnframt var bent á að hægt væri að misnota þetta og nefndin komst að þeirri niðurstöðu að takmarka ekki þessa útvíkkun heldur halda henni inni og halda útvíkkuðum réttindum og tækifæri kjósenda til að nýta kosningarrétt sinn. En eins og kemur fram verður fólk að gefa upp ástæðuna fyrir því, annars fær það í fyrsta lagi ekki þennan rétt — þannig er það í lögunum í dag og er áfram í frumvarpinu. Það verður þá skráð niður og Alþingi upplýst. Í kjölfarið, þegar þessi lög taka gildi 1. janúar, og munu þá virka á sveitarstjórnarstiginu að flestu leyti — rafræna kjörskráin, sem ég kem að á eftir, verður að einhverju leyti prufuverkefni þá en að þessu leyti mun það gilda í sveitarstjórnarkosningunum. Þá fær Alþingi upplýsingar og er upplýst um hvaða tilefni þetta eru, hve mörg þau eru o.s.frv. Þá væri hægt að skoða hvort eitthvað væri óeðlilegt við þetta og við gætum þar af leiðandi skoðað það nánar ef tilefni er til.

Rafræn kjörskrá, eins og ég nefndi rétt áðan, tekur gildi en hún verður prufuverkefni í sveitarstjórnarkosningunum. Hún verður ekki út um allt land. Gerð verður prufa í einhverjum sveitarfélögum og að frumkvæði landskjörstjórnar verður farið af stað með það en sveitarfélögin verða að samþykkja það. Ekki verður hægt að þröngva því upp á sveitarfélögin, þau verða að samþykkja að taka þátt í tilraunaverkefninu, sem síðan er hægt að nota í framhaldinu. Reynslan af því getur leitt okkur til farsældar. Menn vildu prófa þetta fyrst þar sem þetta er nýtt og það er ekkert sérstaklega langt til stefnu. Þó að það sé næstum því ár til stefnu vildu menn hafa varnagla með það og prufukeyra rafrænu kjörskrána fyrst á færri stöðum en ekki gera það yfir allt landið.

Varðandi heimildir til að greiða atkvæði að nýju þá var tillaga um það í frumvarpinu að ef fólk greiddi atkvæði utan kjörfundar, þ.e. fyrir kjördag, gæti það ekki líka greitt atkvæði á kjördag, gæti ekki farið aftur á utankjörfundarstað og greitt atkvæði eins og er í dag. Þetta fannst nefndinni að þyrfti að laga, þ.e. réttur kjósandans. Hann vill kjósa utan kjörfundar og nýtir sér það en svo koma fram nýjar upplýsingar og hann skiptir um skoðun á einhverjum forsendum og þá er það réttur kjósandans sem við færðum inn og tryggðum eins og er í dag, þannig að við breytum frumvarpinu til þess horfs sem það var, að kjósandinn hefur þann rétt að kjósa aftur, sama hvort það er aftur utan kjörfundar eða á kjördag.

Varðandi póstkosningar er endanleg niðurstaða seint til komin, kom til í dag þannig að það sést ekki í nefndarálitinu. Því verður vísað til frekari vinnslu og dómsmálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga og fleiri kæmu að vinnu við og leggja fyrir Alþingi tillögur þess efnis hvernig kosningar gætu verið útfærðar. Þetta var ásteytingarsteinn en fólk sammæltist um það eftir umræður að það væri þess virði, til að geta klárað málið hér á þinginu, að taka það út fyrir svigann en setja það í áframhaldandi vinnslu. Þá kemur það aftur til þingsins í haust, ef ég man rétt. Nei, ekki þetta haust heldur eftir ár.

Stimplun kjörseðils — það var tillaga sem var í frumvarpinu. Þá yrði framkvæmdin sú að fólk fengi atkvæði sitt, eins og þeir þekkja sem hafa kosið, merkti við í kjörklefanum, færi út og áður en atkvæðið yrði sett ofan í kjörkassann mætti einhver aðili til að stimpla það. Þetta var mjög óvinsælt, bæði hjá nefndinni og í mjög mörgum umsögnum, og bent á að þetta gæti valdið ákveðnum kulnunaráhrifum á kjósendur, að einhver aðili væri að handfjatla eða koma nálægt atkvæði hans. Það getur haft ákveðin áhrif á sjálfsritskoðun og þar af leiðandi ákveðin óbein þvingandi áhrif á atkvæðið. Við sammæltumst því um það í nefndinni að taka þetta út þannig að þessi stimplun kjörseðla er ekki inni. Rökstuðningurinn fyrir því að það hefði átt að vera inni, þ.e. þess vegna væri það í frumvarpinu, er sá að fólk væri að taka myndir af kjörseðlinum og þá væri hægt að falsa þá og eitthvað svoleiðis. En okkur fannst það vega miklu þyngra að vera ekki að skapa einhver kælingaráhrif eða óþægileg áhrif á kjósandann, þ.e. að eftir að hann væri búinn að merkja sér atkvæðið kæmi enginn nálægt því. Kjósandinn setur það bara beint í atkvæðakassann.

Kjörgengi og óflekkað mannorð — já, hér er áréttað hvað kjörgengi er. Í stjórnarskránni segir, alla vega varðandi alþingiskosningar, að menn þurfi að hafa óflekkað mannorð. Svo er það skilgreint í öðrum lögum að það þýði að menn þurfi að hafa lokið afplánun að fullu eftir refsingu sem varðar fangelsi lengur en í tvo mánuði — ég man ekki lengur hvað var, hvort það eru tveir mánuðir eða hvað. Ef þú hlýtur slíkan dóm, refsidóm, og þarft að sitja inni í x langan tíma eftir það þarftu að ljúka þeirri afplánun að fullu. Þetta var rætt í nefndinni og farið yfir þetta og farið yfir lögskýringarnar. Nefndin áréttar að þegar einstaklingur hefur hlotið reynslulausn, eins og það er í lögum um fullnustu refsingar, þ.e. reynslulausn er tímapunkturinn sem einstaklingurinn fær að losna, fær hann skilorðsbundna eftirgjöf hluta refsingar. Reynslulausnin er tíminn þegar einstaklingur er orðinn frjáls og er kominn á skilorð og er frjáls ferða sinna. Á þeim tímapunkti er hann orðinn kjörgengur. Reynslulausn og reynslutími — menn hafa svolítið verið að túlka þetta á einn eða annan hátt og var vel farið yfir þetta af lögfræðingum þingsins o.fl. Nefndin áréttar að það sé skýrt að um leið og reynslulausnin er veitt og einstaklingurinn er frjáls ferða sinna þá er hann orðinn kjörgengur.

Hagskýrslugerð og kosningar — upplýsingar sem hægt er að vinna með eru bættar og upplýsa almenning betur um stöðu kosninga og betri upplýsingar og hagskýrslugerð fást út úr því.

Varðandi flokkun atkvæða fyrir luktum dyrum: Þetta eru atriði þar sem menn eru að spara sér tíma. Meginreglan er sú, og það er sú meginregla sem við viljum festa og halda inni, og gerum það með breytingartillögunum okkar, að atkvæði skuli talin fyrir opnum dyrum og fyrir augliti almennings. Það verður reglan. Menn hafa verið byrjaðir að flokka atkvæðin fyrr og við komumst að þeirri niðurstöðu að menn geti flokkað atkvæðin, hérna er þessi flokkur, x-eitthvað, og við erum öll sammála um að hér eru 100 atkvæði til þeirra. En það er alveg skýrt að ef menn flokka atkvæðin fyrir fram geta þeir ekki bara talið bunkana eftir að opnað er fyrir almenning og sagt: Já, hér eru 100 atkvæði hjá þessum flokki. Það verður að taka þessi atkvæði og telja þau aftur. Það sparar tíma að gera það þannig en þá er hvert eitt og einasta atkvæði sannanlega talið. Það er það sem við áréttum og setjum skýrt inn hvað þetta varðar þannig að atkvæði séu sannarlega talin hvert og eitt fyrir augum almennings.

Varðandi aðrar ábendingar sem við gátum ekki brugðist við í þessu, út af því að megintilgangurinn, eins og ég fór yfir, er að sameina fern lög í eina löggjöf þannig að á samræmdan og heildstæðan hátt sé farið að vinna að breytingum og uppfærslu á því inn í framtíðina. Það bárust ýmsar ábendingar við umfjöllun málsins og tillögur til breytinga. Má þar nefna sjónarmið um jafnt vægi atkvæða milli kjördæma og stjórnmálasamtaka og sumir leggja fram breytingartillögu við það þó að ekki hafi náðst samstaða um það. Hvernig er með jafnt hlutfall kynja á framboðslistum, kosningaaldur, kjördæmaskipan? Og einnig var fjallað um heimildir sveitarfélaga, sem framkvæmdaraðila kosninga, til að koma upplýsingum á framfæri við kjósendur.

Vinna nefndarinnar, eins og ég fór inn á, miðaði að því að sameinast um heildarendurskoðunina sem allir umsagnaraðilar voru sammála um að væri mikilvægt að klára. Meiri hlutinn bendir á að skilyrði ættu að skapast til að taka ýmis álitaefni um kosningar til nánari skoðunar með stofnun landskjörstjórnar. Landskjörstjórn er þar af leiðandi orðið þetta batterí sem er að vinna að því stanslaust að skoða fyrirkomulagið, taka við ábendingum o.s.frv. þannig að hægt sé að endurskoða þetta heildstætt út frá öllum þessum lagabálkum sem komnir eru undir eina löggjöf. Við getum á virkan hátt farið að uppfæra löggjöfina heildstætt.

Gildi og lagaskylda til bráðabirgða — já, lögin verða þá samþykkt á Alþingi, það hefur náðst samstaða um það, á morgun geri ég ráð fyrir. Það er alla vega það sem stefnt er að. Þau verða ekki notuð í alþingiskosningunum í haust, 25. september. Það er bara of skammur tími. Það er meginregla, ef gerðar eru veigamiklar breytingar, að hafa eitt ár til stefnu, þ.e. frá því að breytingar eru gerðar þar til þær eru nýttar í kosningum. Lögin taka gildi 1. janúar á næsta ári og eru þar af leiðandi orðin gild fyrir sveitarstjórnarkosningarnar en síðan eru bráðabirgðaákvæði. Það þýðir annars vegar að þeir aðilar sem þurfa að vinna að verkefnum sem þeir þurfa að sinna á næsta ári geta strax byrjað að vinna. Þá er bráðabirgðaákvæði í lögunum og fjármagn mun fylgja með og heimildir o.s.frv. til að passa upp á það að vinnan geti hafist um leið og við samþykkjum þessi lög.

Eins og ég sagði varðandi rafræna kjörskrá, þegar kemur að kosningunum, þá er til bráðabirgðaákvæði og það verður þá tilraunaverkefni í þeim kosningum og svo tekur það fullt gildi í framhaldinu. Svo eru hér aðrar breytingar meiri hlutans. Við vorum fyrir nokkrum dögum að samþykkja frumvarp dómsmálaráðherra, frumvarp til laga um breytingar á lögum um kosningar, varðandi rafræn meðmæli. Fyrst það er orðið að lögum núna, en þegar frumvarpið var lagt fram var það ekki orðið að lögum, er það sett inn sem breytingartillögur inn í þetta þannig að heildarlöggjöfin haldi sér miðað við það sem við samþykktum hér fyrir viku.

Að þessu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem hafa verið raktar og eru lagðar til á sérstöku þingskjali.

Andrés Ingi Jónsson skrifar undir álitið með fyrirvara sem hann mun fara yfir sjálfur. Þetta er gert á Alþingi 4. júní 2021. Undir álitið skrifa Jón Þór Ólafsson, sem hér stendur, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og framsögumaður málsins, Líneik Anna Sævarsdóttir, Guðmundur Andri Thorsson, Andrés Ingi Jónsson, með fyrirvara, Kolbeinn Óttarsson Proppé, Óli Björn Kárason og Þórarinn Ingi Pétursson.

Í lokin eru svo breytingartillögur hér til hliðar. Þær eru í tengslum við það sem ég nefndi áðan um póstkosningarnar sem voru inni. En til að geta klárað málið þurfti að taka þær út og það eru breytingartillögur sem ég legg fram sem framsögumaður málsins. Þó að ég sé ekki hlynntur þeim sjálfur þá er þetta bara til þess að við getum náð þessari heildarlöggjöf, samþætt hana og farið að vinna heildstætt að breytingum á kosningalöggjöfinni til réttarbóta fyrir landsmenn og til að tryggja öryggi kosninganna. Það eru breytingartillögur á þskj. 1739 og 1740 sem fólk getur kynnt sér.

Að lokum þakka ég kærlega fyrir mjög góða vinnu. Vinnan var mjög vel ígrunduð og mestmegnis í mikilli sátt. Við tókum þann tíma sem þurfti til að skapa þá sátt. Við sendum nefndarálitið meira að segja aftur til umsagnar sem er nánast aldrei gert varðandi mál á þingi. Þegar við vorum komin í gegnum öll ágreiningsmálin hjá okkur og komin með einhvern texta, drög að nefndaráliti, sendum við það í umsögn. En breytingarnar voru mjög viðamiklar þannig að við vildum fá viðbótarathugasemdir frá umsagnaraðilum við þær miklu breytingar sem við gerðum og fórum yfir og brugðumst við að svo miklu leyti sem var gerlegt til að ná samstöðu um þessa heildarendurskoðun eins og ég hef rakið. Ég þakka aftur kærlega fyrir mjög góða vinnu og farsælt skref hvað varðar kosningalög í landinu og framtíðarþróun þeirra.