kosningalög.
Virðulegi forseti. Það verður fróðlegt að sjá hvernig atkvæði verða greidd um þetta. Það kemur ekki á óvart að stjórnarflokkarnir og Miðflokkurinn leggist gegn þessu máli en engu að síður hafa heyrst raddir innan Sjálfstæðisflokksins og innan annarra stjórnarflokka, líka innan VG, um að líta eigi til þess að jafna vægi atkvæða.
Ég held að orð dr. Ólafs Þ. Harðarsonar vegi auðvitað mjög þungt. Hann hefur talað mjög skýrt um að nú sé tækifæri. Það er hægt að breyta þessu öðruvísi en í gegnum stjórnarskrána. Í stjórnarskránni er hlutfallið einn á móti tveimur og misvægið má aldrei vera meira en einn á móti tveimur. Þegar ég byrjaði á þingi fjallaði jómfrúrræða mín einmitt um þetta mál. Þá var stjórnarskráin til umræðu og þá var verið að fara úr einum á móti fjórum hvað varðar misvægi atkvæða í einn til tvo. Það var gríðarlega mikilvægt skref. Nú eru liðin meira en 20 ár og kominn tími til að stíga næsta skref til að leiðrétta misvægið. Við getum annars vegar gert það í gegnum stjórnarskrána og hins vegar í gegnum þetta mál, kosningalögin, og reynt að feta áfram þá braut sem síðast var fetuð 1999. Fyrir mína parta verður afar fróðlegt að sjá hvernig það fólk sem talar oft og tíðum af ríkri réttlætiskennd um að jafna þurfi leikinn greiðir á endanum atkvæði í þingsal um breytingartillöguna sem við höfum lagt fram ásamt fleirum.
Ég vil bara undirstrika að það er gott að fá þessi skoðanaskipti fram. Um leið vil ég þakka nefndinni fyrir góða vinnu. Í heildina er það mikilvægt skref sem stigið er með þessum breytingum á kosningalögum.