kosningalög.
Herra forseti. Ég mun fara yfir lögin í stuttu máli, aðallega það sem vakið hefur athygli mína. Ég mun lesa þessa grein upphátt í ræðustól, greinina sem ég og hv. þingmaður vorum að fjalla um. Greinarnar eru reyndar tvær en það nægir að fara yfir aðra þeirra vegna þess að þær eru samhljóða. Ég fer betur yfir það á eftir. Í byrjun ætla ég aðeins að fjalla um málið í heild. Vissulega á þetta mál alllangan aðdraganda og löngu tímabært að laga fjölmargt í kosningalögunum og ekki bara í lögum um kosningar til Alþingis heldur líka í öðrum kosningalögum eins og um sveitarstjórnir, í lögum um framboð og kjör forseta Íslands og í lögum um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna. Í frumvarpinu er öllum þessum lögum steypt í einn lagabálk og er það í sjálfu sér ágætismál.
Þessir lagabálkar voru sumir komnir vel til ára sinna og voru sundurleitir að mörgu leyti, það var alveg augljóst. Sérstaklega á það við um lögin um framboð og kjör forseta Íslands. Þau voru mjög á skjön við lögin um kosningar til Alþingis vegna þess að allt aðrir landshlutar, allt önnur svæði voru notuð í þeim lögum. Það voru svokallaðir landsfjórðungar og olli það miklum vandræðum, bæði fyrir þá sem voru að safna meðmælum og líka fyrir þá sem voru að bjóða sig fram, líka hvað varðar yfirferð á öllum meðmælendalistum o.s.frv. Þetta var því löngu orðið tímabært og ég er mjög hlynntur því að þetta sé gert með þessum hætti, að þessu sé steypt saman í ein lög.
Það er ýmislegt sem ég hafði við frumvarpið að athuga, herra forseti, en ég get þess að búið er að laga langmest af þeim stóru annmörkum sem var að finna á frumvarpinu. Þó er einn annmarki sem ég nefndi í andsvörum hér áðan sem enn stendur eftir, og kannski einhverjir litlir annmarkar sem skipta minna máli. Það er t.d. búið að laga það sem varðar kjör landskjörstjórnar og hefur það verið fært til betri vegar. Þrír eru tilnefndir af Alþingi og tveir af Sambandi íslenskra sveitarfélaga og geri ég ekki athugasemdir við það. Það er búið að færa það til betri vegar.
Eitt sem ég er ekki fyllilega ánægður með, og tel að við verðum að fara gætilega í, og fer persónulega í taugarnar á mér, er stofnanavæðing. Stofnanavæðing landskjörstjórnar helst inni þó að eitthvað hafi verið dregið úr því. En það er greinilegt í hvað stefnir. Það er alltaf til staðar tilhneiging fyrir æðri stofnanir til að úthýsa verkefnum niður til lægra settra stjórnvalda til að þær fái örlítið meiri frið. Og hið lægra setta stjórnvald sem er kannski örlítið í upphafi, eins til tveggja manna skrifstofa, hefur tilhneigingu til að stækka. Þannig gerist þetta sí og æ í stjórnkerfinu. Hvað varðar kosningar þá hefur það verið aukavinna fyrir einn eða tvo starfsmenn í dómsmálaráðuneytinu í kringum kosningar. Nú á að búa til stofnun utan um þetta og fyrr en varir verður hún orðin geysilega skemmtilegt og stórt bákn. Ég sé í frumvarpinu að gefa á út ársskýrslur og gefa ráðuneytinu skýrslur þannig að það verður nóg að gera, það er enginn vafi á því. Ég er á móti svona löguðu. Undirbúningur kosninga hefur verið á höndum örfárra starfsmanna í dómsmálaráðuneytinu í einhverjar vikur, byrjar kannski nokkrum mánuðum fyrir kosningar í hvert skipti. Kosningar eru á fjögurra ára fresti, Alþingiskosningar og sveitarstjórnarkosningar og forsetakosningar. Vinna í ráðuneytinu er auðvitað mismikil eftir því um hvaða kosningar er að ræða. Að útvista þessu og búa til stofnun er einhvers konar kækur í stjórnsýslunni — kækur, herra forseti. Ég er í prinsippinu á móti þessu. Og enn og aftur: Þetta á að vera stofnun sem er staðsett í Reykjavík. Hlutirnir verða miðstýrðari en áður og allt vald leitar hingað á höfuðborgarsvæðið. Ég er í prinsippinu á móti því, ég vil bara koma því að. Þetta er ekki sáluhjálparatriði en allt svona fer afskaplega í taugarnar á mér.
Ég ætla að nefna yfirkjörstjórnir í kjördæmum. Í upphaflega frumvarpinu var gert ráð fyrir að þær yrðu lagðar niður og talning atkvæða færi fram í hverju sveitarfélagi fyrir sig. Það var fellt út úr frumvarpinu og það er gott, ég er afskaplega ánægður með það. Ég tel að það auki flækjustigið, auki hættu á mistökum og misræmi að fjölga stöðum úr sex í meira en 70. Það er gott að fallið var frá þessu, þ.e. að heimila ekki kjósanda að kjósa á kjörfundi ef hann hefur kosið utan kjörfundar. Þannig var það í upphaflega frumvarpinu, en það er búið að fella það út og ég er ánægður með það.
Varðandi stimplun atkvæða á leið í kassa til að einfalda vinnu við talningu og eftirlit, þá var ég svo sem ekkert óhress með það atriði, taldi það hugsanlega til bóta, en það verður fellt út. Látum það vera. Varðandi rafræna kjörskrá hef ég alltaf verið svolítið hrifinn af þeirri hugmynd, þó að sumir megi alls ekki heyra á þetta minnst. Rafræn kjörskrá veitir ótrúlega möguleika til vinnusparnaðar og til að auðvelda alla framkvæmd kosninga. Ég hef verið hlynntur því að taka upp rafræna kjörskrá. Það eru nokkur ljón á veginum í því að taka upp rafræna kjörskrá. Ríkisvaldið þyrfti þá að hafa umsjón með því að allar kjörstjórnir hefðu fullnægjandi tölvubúnað. Einhver kostnaður myndi fylgja því. Ég sé ekki að það gerist svona í einu vetfangi.
Öryggi rafrænnar kjörskrár er líka áhyggjuefni. En ef unnt er að tryggja fullkomið öryggi þá er þetta tvímælalaust vinnusparnaður. Ég sé að í tillögum í frumvarpinu er gert ráð fyrir að þetta skuli ekki taka upp nema hjá fáeinum sveitarfélögum til að byrja með, til prufu. Það er vel. Eins og stendur í frumvarpinu þá er það til vinnusparnaðar og einföldunar. En það er kannski ekki alveg svo einfalt, herra forseti. Þó að eitthvert eitt sveitarfélag eða tvö tækju upp rafræna kjörskrá myndi það ekki einfalda hlutina nokkurn skapaðan hlut. Það yrði að vera yfir allt. Ef einhver sem kýs í Kópavogi kemur inn á kjörstað í Hafnarfirði og ef rafræn kjörskrá er á öðrum staðnum en ekki á hinum myndi þurfa að taka gamla systemið upp. Þá þyrfti að hringja á milli kjörstaða og athuga hvort viðkomandi hefði birst á hinum staðnum vegna þess að öðrum megin væri bókað en hinum megin væri það gert í tölvu. Það myndi ekki spara neitt. En ef rafræn kjörskrá væri á öllum stöðum gæti gífurlegur sparnaður orðið af því og engin samskipti þyrfti, það færi allt í gegnum tölvu og kjósandi í einu kjördæmi gæti birst hvar sem er í kjördæminu og kosið án þess að nokkur hætta væri á því að hann gæti laumað sér inn á öðrum kjörstað, af því að búið væri að merkja við hann í tölvunni. En það kallar á öryggi. Þetta er gífurlegur vinnusparnaður, herra forseti, og líka bara við talninguna. Ég hef verið hlynntur rafrænni kjörskrá sem er allt annar hlutur en rafræn kosning. Það er allt annar hlutur.
Þá er ég kominn að öðru sem ég ætlaði að tala um og það eru þessi póstatkvæði. Samkvæmt upphaflega frumvarpinu átti að fara í þá vegferð að heimila póstkosningar. Til að byrja með átti að heimila póstkosningar erlendis. Sem betur fer hefur verið fallið frá því. Ég segi sem betur fer vegna þess að póstkosningar skapa mikla hættu á misnotkun og jafnvel þótt gerðar verði einhverjar öryggisráðstafanir, eins og skilríki eða eitthvað slíkt, eru tölvukerfi ekki fullkomnari en svo að hægt er að brjótast inn í þau. Menn kysu kannski mánuðum fyrir kosningar og eftirlitið yrði mjög erfitt. Þá yrði erfitt að sjá hvort einhver væri búinn að hakka sig inn.
Síðan með þessa votta, það er auðvitað ákveðin hætta hvað það varðar hvort kjósandinn kjósi raunverulega í einrúmi eða hvort einhver annar geri það fyrir hann. Ég er því afskaplega feginn því að fallið sé frá því þó að gert sé ráð fyrir því í nefndarálitinu að póstkosningar verði athugaðar af hálfu ráðuneytisins. Það er bara allt í lagi, en ég er feginn því að þetta er úti. Öryggi kosninga er ekki atriði sem við getum umgengist af léttúð. Öryggi kosninga á ekki að umgangast af léttúð. Eins og fram kom í andsvörum hjá mér áðan hvað varðar aðstoð við kjósendur, þá tel ég það vera algjöra léttúð þegar menn orða það svo í nefndaráliti að ákveðin skilyrði séu sett í ákvæðinu og skilyrðin finnast ekki. Eru það einhver skráningarskilyrði? Er það skilyrði að kjörstjórn skrái niður ástæðu aðstoðarinnar? Er það eitthvert skilyrði sem erfitt er að fara í gegnum? Það er bara ekki nokkurt skilyrði, herra forseti. Og er það skilyrði, eins og stendur hér í ákvæðinu, að kjósandi geti sjálfur skýrt þeim frá er aðstoðina veitir? Er það skilyrði? Það er alger misskilningur, herra forseti, að túlka það sem skilyrði, þ.e. þegar kjósandinn er kominn inn í kjörklefann með aðstoðarmanni sínum, að hann geti sagt honum í tveggja manna tali það sem þagnarskylda ríkir um, að hann geti skýrt honum frá því hvað hann ætlar að kjósa. Það er hlægilegt að segja að það sé skilyrði. Kjósandinn gæti steinhaldið kjafti allan tímann og enginn myndi nokkru sinni vita það. Það er ekkert skilyrði, herra forseti. Þetta er bara hlægilegt.
Ég vann við kosningar í 20 ár á öllum köntum þess fyrirkomulags; sem aðstoðarmaður, kjörstjóri í kjörstjórn, í yfirkjörstjórn, í heimahúsum, á stofnunum, í fangelsum, á elliheimilum — allt stafrófið. Og það er alveg ótrúlegt hvað menn reyna í þessu sambandi. Fólk reynir að teyma gamalmenni á kjörstað sem hafa ekki hugmynd um til hvers þau eru mætt á staðinn, eða yngra fólk sem hefur ekki hugmynd um hvað kosningar eru, hefur ekki hugmynd um hvað flokkarnir heita, þekkir kannski ekki einn einasta stjórnmálamann eða flokk. Þetta fólk er teymt á kjörstað, herra forseti, af aðstandendum eða einhverjum nákomnum eða einhverjum sem vinnur á stofnuninni þar sem það er. Þetta fólk er teymt á kjörstað og ef það kemst í gegnum skilyrðin, sem eru engin núna, þá er það að sjálfsögðu aðstoðarmaðurinn sem stjórnar athöfnum. Það er hverjum manni ljóst. Það er stórhættulegt, herra forseti. Það er léttúð. Ég kann dæmi um töluverðan fjölda atkvæða sem greidd hafa verið á þennan hátt, og reyndar ekkert svo gamalt dæmi, ég held að sagt hafi verið frá því í blöðunum.
Það gengur ekki, herra forseti, að við séum að flýta okkur svo mikið hér á Alþingi við gerð þessa frumvarps um kosningar að svona sé látið fara í gegn. Það gengur ekki, herra forseti. Hvað þarf að gera? Ég nefni það sem dæmi að það er einfaldlega hægt að taka upp skilyrðin úr gömlu lögunum. Er það ósanngjarnt að kjósandinn komi inn og tali við kjörstjóra og geti sagt, ef hann getur það: Ég vil fá aðstoð, ég vil að Sigurður aðstoði mig? Er það til of mikils mælst? Hvert nær kosningarrétturinn, herra forseti? Hvar endar hann? Þarf ekki að gera kröfu um að kjósandinn viti að hann ætlar að kjósa og hvað hann ætlar að kjósa? Annars hlýtur einhver annar að stjórna honum. Er það ekki rétt? Ef kjósandinn veit ekkert hvað hann er að gera, veit ekki annað en að hann er að fara að kjósa, veit ekkert hvað hann ætlar að kjósa, hver stjórnar þá kosningarrétti hans? Og eigum við bara að opna á það?
Nei, herra forseti. Ég tel þetta vera alvarlegt mál en ætla ekki að eyða meiri tíma í þetta. Trúlega eru allir orðnir þreyttir á mér en þetta er alvarlegt og það er einfalt að laga þetta. Í fyrsta lagi þarf að koma því inn í lögin að kjósandi skýri kjörstjórninni frá því að hann þurfi aðstoð og að hann geri það í einrúmi, ekki undir áhrifum þess sem aðstoðina veitir. Ástæðan fyrir því þarf ekki að vera merkileg. Það þarf ekki að vera sjónleysi eða fötlun, hann getur einfaldlega skýrt kjörstjórn frá því að hann vilji aðstoð og hann vilji að þessi tiltekni maður aðstoði sig. Ef hann nær að fara í gegnum þetta nálarauga, sem er ekki þröngt, er hægt að veita honum aðstoð og þá getur hann fengið aðstoð eins og hann vill. Er það til of mikils mælst? Þetta er svo einfalt. Nei, réttur kjósanda til að kjósa er svo mikill að jafnvel þeir sem ekki hafa hugmynd um hvað kosningar eru eða hvað þeir ætla að kjósa, eða yfirleitt bara til hvers þeir eru mættir á staðinn, eiga að fá að láta teyma sig þarna inn og kjósa. Og hver kýs þá í raun og veru? Nei, við megum ekki flýta okkur svo mikið að við opnum fyrir stórfellda misnotkun á kosningarréttinum. Kosningarrétturinn er mikilvægur, ég tek undir það og það stendur hér, en við megum ekki ganga svo langt að galopna á misnotkun.