151. löggjafarþing — 112. fundur,  12. júní 2021.

nýting á landi í eigu ríkisins í atvinnuskyni.

538. mál
[03:00]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta góða innlegg og tek heils hugar undir með honum um að auðvitað er tilgangurinn að hafa ramma um nýtingu á landi ríkisins í atvinnuskyni, sem hefur ekki verið til staðar, og að við nýtum þessi verðmæti, sem felast svo sannarlega í landi ríkisins, skynsamlega og hóflega.

Það er ágætiskafli í nefndarálitinu á bls. 2 þar sem fjallað er um aðgengi ferðamanna. Þar segir einmitt að almennt hafi umsagnaraðilar verið jákvæðir gagnvart þeim aðgangstakmörkunum sem frumvarpið hefur í för með sér og m.a. komið fram ánægja með það að taka skyldi upp aðgangstakmarkanir, eða möguleika á þeim. Það hefur enda komið í ljós undanfarin ár, eins og við þekkjum, að ferðamönnum hefur fjölgað gríðarlega og þetta hefur skapað álag á land og ferðamannastaði og þetta hefur vantað þegar kemur að landi ríkisins. Einkaaðilar geta náttúrlega haft sínar aðgangstakmarkanir, en hins vegar erum við að úthluta takmörkuðum gæðum og á sama tíma verðum við náttúrlega að hafa í huga að það ferli verður að vera gagnsætt og enginn vafi liggja á því. Það er mjög mikilvægt hvað þetta ferli varðar. Að öðrum kosti þakka ég hv. þingmanni fyrir ágæta yfirferð á þessu máli og góð andsvör.