151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

Hálendisþjóðgarður.

369. mál
[10:01]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Kolbeinn Óttarsson Proppé) (Vg):

Forseti. Á þessum tímum þegar stjórnmál og umræða um þau, fréttaflutningur af þeim og umræða innan þeirra, snýst æ meira um persónur gerðum við vel að muna að sum mál eru þeirrar gerðar að þau eru svo miklu stærri en allt það fólk sem að þeim kemur. Þetta er eitt þeirra mála. Þetta mál varðar hálendi Íslands, náttúruna sem við öll berum ábyrgð á, hjartað í landinu okkar. Það er svo miklu stærra en hvert okkar sem tekur þátt í þessari umræðu, stærra en einstaka stjórnmálafólk, þingmenn, formenn flokka, stærra en flokkarnir sjálfir og mögulegt fylgi þeirra.

Forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar og sýnist á öllu að þrátt fyrir hið mikla magn af pappírum sem ég hef haft með mér hér í pontu þá vanti mig sjálft nefndarálitið og þakka ég hv. formanni umhverfis- og samgöngunefndar fyrir að bjarga mér með það.

Forseti. Við þurfum ekki að fara mörgum orðum um það hversu umfangsmikið málið sem hér er undir er. Þetta er ekki nýtt mál. Þetta mál varð ekki til þegar núverandi ríkisstjórn ákvað að taka saman höndum, þeir flokkar sem hana skipa. Þetta hefur verið í deiglunni árum og áratugum saman. Stjórnmálafólk hefur talað fyrir því. Vinstrihreyfingin – grænt framboð haldið því á lofti. Fólk í flestum ef ekki öllum flokkum hefur komið að því á einhverjum tímapunkti.

Þrír síðustu umhverfisráðherrar hafa komið að því á einhvern hátt að stofna þjóðgarð á hálendi Íslands. Hv. þáverandi umhverfisráðherra, Sigrún Magnúsdóttir, Framsóknarflokknum, í ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, setti af stað vinnu sem skilaði sér í lokaskýrslu nefndar um forsendur fyrir stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands. Í þeirri ríkisstjórn sátu Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur. Björt Ólafsdóttir, þáverandi umhverfisráðherra, lagði fram þessa skýrslu þann stutta tíma sem hún sat í embætti í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar. Síðan fór þetta mál inn í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar. Þeir flokkar sem hana skipuðu samþykktu að stofna þjóðgarð á hálendi Íslands. Skipuð var þverfagleg nefnd eða þverpólitísk nefnd öllu heldur í hverri sátu fulltrúar allra flokka sem sæti eiga á Alþingi. Hún skilaði af sér skýrslu í desember 2019, Hálendisþjóðgarður. Undir hana rituðu allir fulltrúar nema fulltrúi Miðflokksins sem ég hygg að muni gera grein fyrir sjónarmiðum sínum í ræðu hér á eftir.

Forseti. Það sem ég er að segja með þessari upptalningu er að minna okkur á að það ríkir býsna mikil sátt um stofnun þjóðgarðs á hálendi Íslands. Ég ætla að taka ábyrgð mína alvarlega þegar að þeirri sátt kemur og leggja mig fram um það, eins og ég þykist hafa gert hingað til, í umræðunni hér að vinna að málinu áfram, að það megi lifa. Einmitt í því skyni hefur meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar lagt fram nefndarálit sem ég er reyndar ekki enn kominn með í hendur því að ég hef fengið vitlaust blað afhent í þeirri góðu samvinnu sem þó hefur ríkt hér. Það sem meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar er að leggja til er að áfram verði unnið að málinu, að það verði ekki látið deyja í nefnd.

Við munum heyra í umræðunni alls kyns söguskoðanir á því hvað það þýði og það er bara gott og blessað. Fólk hefur ólíka sýn á hlutina. Það er hins vegar ekki hægt að deila um það að ef ekkert hefði átt að gera í málinu hefði ekkert verið gert. Það hefði ekki þurft að afgreiða þetta mál úr nefnd. Fjöldi stjórnarmála er ekki afgreiddur úr nefnd. Þetta er hins vegar afgreitt með skýrum fyrirmælum um hvað það er sem meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar og vonandi Alþingi allt getur sæst á.

Í nefndarálitinu með frávísunartillögu er farið yfir umfjöllun nefndarinnar. Fjöldi þeirra sem skiluðu umsögnum er slíkur að það tekur tvær fyrstu blaðsíðurnar. Þær eru, ef ég man rétt, 158 talsins. Ég veit ekki hversu mörg hafa lesið hvern einasta stafkrók í þessum umsögnum. Það hef ég gert og þar kemur ýmislegt gott fram.

Forseti. Ég fór aðeins yfir söguna og endaði á því máli sem við nú leggjum til að vísað verði til ríkisstjórnarinnar og lifi þannig. Ég ætla ekki að draga fjöður yfir það að þrátt fyrir að ég sé ánægður með að málið lifi með þessari afgreiðslu varð ég fyrir vonbrigðum með að málið skyldi ekki lifa þannig að það yrði einfaldlega samþykkt. Ég tók það alvarlega að það væri í stjórnarsáttmála og hafði væntingar um að það yrði samþykkt. Málið hefur hins vegar verið gríðarlega umdeilt.

Ég minntist hér, forseti, á allar þessar umsagnir og ég hef litakóðað þær eftir því í hverju athugasemdirnar eru fólgnar, að hverju þær snúa. Snúa þær að sjálfsforræði sveitarfélaga, of mikilli miðstýringu eða hvað? Af því að allt þetta er að finna í þessum umsögnum. Málið er nefnilega gríðarlega víðtækt. Með slík mál er svo auðvelt, ef viljinn er fyrir hendi, að finna sér eitthvert eitt horn, vera á móti því og segja fyrir vikið: Ég er á móti málinu öllu. Það þótti mér einkenna um of umræðu þá sem skapaðist um málið beggja megin við síðustu áramót, umræðu þar sem fólk, bæði innan og utan þings, fór yfir sína sýn á málið. Ýmislegt var sagt þar og ég lít einfaldlega svo á að það séu ekki réttar upplýsingar eða að málið sé túlkað á mjög sérkennilegan hátt.

Gott og blessað. Maður getur ekki heimtað að umræða um stór mál fari bara fram eftir manns eigin höfði, skárra væri það nú. En umdeilt og risastórt mál sem hefur verið lengi í vinnslu, og fram kom gríðarlega víðfeðmt frumvarp sem byggði á vel unninni undirbúningsvinnu, tók á ótrúlega mörgum hlutum. Málið kom seinna fram en það átti að gera. Það átti að koma fram í fyrra. Við áttum að hafa eitt og hálft ár, eitthvað svoleiðis, upp á að hlaupa ef við hefðum þurft á því að halda, annars hefðum við náð því hér á þinginu í fyrra. En hæstv. ráðherra lagði til að umræðu um málið yrði frestað út af Covid. Covid hafði áhrif á allt. Ég hef heyrt fólk bera brigður á að Covid hafi haft nokkur áhrif á þetta mál. Það fólk er að mínu viti að tala út frá eigin hagsmunum í pólitík, ekki á sanngjarnan hátt um raunveruleikann. Covid hafði sannarlega áhrif á málið. Ef Covid hefði ekki verið hefði málið komið fram í fyrra.

Það er ekki eins og þetta hafi verið eina málið sem hv. umhverfis- og samgöngunefnd hefur haft um að fjalla. Ég tók það saman að gamni mínu að á yfirstandandi þingi hefur nefndin afgreitt 19 stjórnarmál til 2. umr. og flutt sjálf fjögur mál. Það er ágætt að hafa í huga að á síðasta þingi afgreiddi nefndin 18 mál, þar síðasta 22. Nefndin var að starfa að fullu, sýndi góða vinnu í öllum þeim málum sem þurfti að vinna og ekki voru það Covid-mál hjá okkur. Þetta voru öll hin málin sem við þurftum að vinna að.

Svona stórt mál þarf mikla umfjöllun. Í nefndaráliti sem fylgir frávísun er farið aðeins yfir það hver umfjöllun nefndarinnar var. Ég ætla ekki að rekja það hér, heldur ekki örstutta yfirferð yfir söguna sem ég hef sjálfur farið hér yfir. Ég hef sem framsögumaður málsins líka unnið að því utan þings. Ég hef til að mynda átt símtöl við fulltrúa hvers einasta sveitarfélags sem málið snertir, 21 sveitarfélag. Ég hef hringt í fulltrúa hvers einasta þeirra. Ég hef hitt meiri hlutann af þeim á sérstökum fundum þar sem ég hef verið að reyna að þoka málinu áfram. Ég hef talað við ótalmörg félagasamtök, bæði samtök fólks sem fyrst og fremst er umhugað um frjálsa för sína um hálendið og eins samtök sem fyrst og fremst er umhugað um að vernda hálendið, þó að ég hyggi nú að margt fleira sameini þessi tvö sjónarmið en kannski mætti ætla við fyrstu sýn. Ég hef rætt við fulltrúa þeirra sem vilja nytja hálendið að einhverju leyti.

Ég held, forseti, að að engu máli hafi ég unnið jafn mikið innan þings og þessu, eða öllu heldur utan þings því að þessir fundir voru ekki á hefðbundinni dagskrá þingsins heldur átti ég þá utan hennar. Það sem ég dreg út úr þessari vinnu er að ég hef afskaplega fáa hitt sem eru alfarið á móti þjóðgarði á hálendinu. Ef við lesum okkur í gegnum þessar 158 umsagnir kemur það sama í ljós. Það eru afskaplega fáar umsagnir sem segja: Alls ekki þjóðgarð á hálendinu. Þær segja hins vegar margar hverjar að vinna þurfi málið betur, að meiri sátt þurfi að ríkja. Það er það sem meiri hluti hv. umhverfis- og samgöngunefndar leggur til að gert verði. Við hlustuðum líka á það í umsögnunum. Ég tel að þeir kjörnu fulltrúar sem bregðast því sem kemur fram í umsögnunum séu ekki að verða við því sem hagaðilar að málinu óska eftir. Það er kallað eftir því að meiri sátt náist um málið. Í því skyni leggur meiri hlutinn til að málið verði unnið meira.

Við teljum að umræðan sem fram hafi farið á síðustu árum, bæði um fyrirliggjandi frumvarp en eins um þau sem ég hef rakið hér og vinnuna sem hefur verið á hendi annarra ráðherra, sé nauðsynlegur þáttur í því ferli að ná sátt um málið. Við teljum nauðsynlegt að taka afstöðu til ýmissa þátta. Við rekjum þá í nefndaráliti, mörk þjóðgarðs, verndarflokkar, hvernig afstaða sveitarfélaga verði leidd fram, stjórnfyrirkomulag, verkaskipting, samspil skipulagsáætlana sveitarfélaga, reglur um umferð, umgjörð um hefðbundnar nytjar, ítarleg fjárþörf, hvernig samningar um atvinnustarfsemi verði og hvernig hugað verði að málum sem skiptast milli ólíkra ráðuneyta, svo að ég hlaupi á hundavaði yfir þá punkta sem við tiltökum í nefndarálitinu og allir geta kynnt sér. Við teljum að ef áfram verður rætt um þessi mál, með þeim sem að því koma, muni málið þroskast meira og út úr því komi það sem við felum hæstv. umhverfis- og auðlindaráðherra að gera, nýtt frumvarp um málið sem lagt verði fram. Í nefndaráliti segjum við, með leyfi forseta:

„Hálendi Íslands er einstakt og vanda þarf sem best til verka þegar kemur að verndun og nýtingu og umgengni á því landsvæði. Ríkja þarf traust á milli þeirra sem málið snertir, þar á meðal heimamanna, sveitarfélaga, félagasamtaka og ríkisvaldsins. Meiri hlutinn telur að til að ná slíkri sátt þurfi að gefa málinu lengri tíma og mikilvægt sé að halda áfram að vinna að því í víðtæku samráði við alla hagaðila.“ — Þannig lifir málið áfram, forseti.

Ég hefði kosið að við hefðum getað tekið meira höndum saman, lagt okkur öll saman meira fram um að leysa málið, öll saman meira fram um að finna þær lausnir sem þyrftu að finnast til að ná málinu fram. En eitt stykki heimsfaraldur varð til þess að það sneyddist um tíma. Önnur mál sem nefndin þurfti að fjalla um höfðu sömu áhrif. Fjöldi umsagna og ólíkra skoðana kallaði á ítarlega umfjöllun og ég hygg að nánast hefði þurft að ryðja borð hv. umhverfis- og samgöngunefndar af öllu öðru ef nægilega vel hefði átt að fjalla um þetta mál á þeim tíma sem nefndinni var skammtaður því að um það var samið að umfjöllun í nefndinni hæfist ekki fyrr en í febrúar.

Forseti. Ég gæti talað mun lengur um þjóðgarða en ég hef gert hér, ég hef gert það og mun áreiðanlega gera það. Ég hef lýst hér samtölum mínum við fólk, símtölum. Meiri hlutinn leggur til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar og umhverfis- og auðlindaráðherra verði falið að leggja fram nýtt frumvarp um málið sem verði byggt á þeirri vinnu sem rakin er í nefndarálitinu og ég hef farið hér yfir.

Undir álitið rita auk mín hv. þingmenn Ari Trausti Guðmundsson, Jón Gunnarsson, Líneik Anna Sævarsdóttir og Vilhjálmur Árnason. Ég hefði kosið að fleiri hv. þingmenn væru með á þessu og vildu frekar að haldið yrði áfram að vinna að málinu en að því yrði hætt. Um það snerist valið á þeim tímapunkti þegar við ákváðum að taka málið úr nefnd. En hver verður að kjósa um það hvernig hann hagar sínum málum hér.

Ég segi að lokum: Í mínum huga eru það vonbrigði að málið skyldi ekki ná fram að ganga á þessu þingi. Ég er þó ánægður með að við viðurkennum og höldum á lofti mikilvægi málsins og vísum því til áframhaldandi vinnu. Ég er ekki í nokkrum vafa um það, forseti, að það verður þjóðgarður á hálendi Íslands.