151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

Hálendisþjóðgarður.

369. mál
[10:21]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta um.- og samgn. (Bergþór Ólason) (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Kolbeini Óttarssyni Proppé, framsögumanni meiri hlutans, framsöguna og fyrir þá miklu vinnu sem ég veit að þingmaðurinn hefur lagt í þetta mál. Ég veit að málið er sannarlega hans hjartans mál þannig að ég vil sérstaklega þakka honum fyrir það þó að við séum ósammála um málið sem slíkt. Í nefndarálitinu — þar sem þingmaðurinn leggur áherslu á að með þessari afgreiðslu, þessari frávísunartillögu eins og hún liggur hér fyrir, sé verið að halda málinu við, halda því á lífi til frekari vinnslu — eru talin upp ein átta atriði sem segir að huga þurfi sérstaklega að, að séu skoðuð, kláruð og sátt náist um, séu með einum eða öðrum hætti leidd í jörðu í áframhaldandi vinnu. Síðan segir í nefndarálitinu, með leyfi forseta:

„Að þessu virtu leggur meiri hlutinn til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar og umhverfis- og auðlindaráðherra verði falið að leggja fram nýtt frumvarp um málið …“

Spurning mín til hv. framsögumanns er: Þetta atriði sem hér segir, að umhverfis- og auðlindaráðherra verði falið að leggja fram nýtt frumvarp um málið — lítur hv. framsögumaður þannig á að með þessu, starfi ríkisstjórnarflokkarnir áfram á næsta kjörtímabili, séu núverandi flokkar, Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn, búnir að skuldbinda sig til að leggja fram, klára og afgreiða frumvarp um hálendisþjóðgarð eins og það kemur fram í kjölfar þeirrar vinnu?