Hálendisþjóðgarður.
Forseti. Ég held að það sé miklu fleira sem þurfi að huga að heldur en er í þeim punktum sem eru í nefndarálitinu. Þetta er kannski örlítil tilraun til að lista upp það sem hefði staðið í nefndaráliti þar sem lagt hefði verið til að samþykkja málið. Við hefðum þurft að taka á öllu þessu. Ef fólk ætlar að ná almennri sátt um málið þarf að ræða miklu fleira en hér er gert. Ég hef ekki heyrt annað á neinum fulltrúa umræddra flokka sem hv. þingmaður spurði um en að vilji sé til að stofna þjóðgarð á miðhálendi Íslands. Ég hef heyrt fólk lýsa andstöðu við frumvarpið eins og það lítur út, ég hef heyrt fólk segja að ekki sé tekið á ákveðnum hlutum í því, ég hef heyrt fólk segja að breyta þurfi frumvarpinu eins og það er og ýmislegt annað en ég hef engan heyrt segja — hv. þingmaður leiðréttir mig ef hann veit að ég hef rangt fyrir mér, það getur vel verið að svo sé, ég hef býsna oft rangt fyrir mér — að hann sé algerlega á móti þjóðgarði.
Ég vona, forseti, hver sem næsti umhverfisráðherra verður, að leggi hann fram slíkt mál muni hann virða þann vilja sem fram kemur í öllum þeim umsögnum sem fylgdu málinu — ég fór aðeins yfir það áðan að það eru rosalega margar umsagnir þar sem sagt er: Já, við viljum kannski breyta þessu eða hinu, við erum á móti þessu, þessu og þessu en við erum alls ekki á móti þjóðgarði — að hann virði það að í jafn mörgum umsögnum komi fram jafn jákvæð afstaða til þjóðgarðs á hálendinu yfir höfuð, óháð málinu. Ég vona að næsti hv. umhverfisráðherra virði það, hver sem hann verður.