Hálendisþjóðgarður.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Bara svo að ég skilji það rétt þá lítur þingflokkur Vinstri grænna — ég gef mér að þetta nefndarálit sé lagt fram með samþykki og í umboði hans eins og annarra stjórnarflokka sem að málinu koma — ekki svo á að þarna sé um að ræða skuldbindingu til að klára málið á næsta kjörtímabili. Það væri áhugavert upp á framhald umræðunnar að heyra hvort það sé réttur skilningur.
Ég held að það sé rétt hjá framsögumanni sem hann hélt fram um sjálfan sig, að fáir væru betur lesnir en hann í því sem komið hefur fram um þetta mál. Þau atriði sem eru talin upp í þessum punktum — ég vísaði bara til þeirra af því að þau eru hérna. Einhverra hluta vegna eru þau hérna og það hlýtur að benda til þess að þetta séu talin sérstök atriði sem þurfi að leggja áherslu á eða hafi ekki verið rædd forsvaranlega í undirbúningi nú þegar. Hér er m.a. talað um mörk þjóðgarðs og verndarflokka, stjórnfyrirkomulag, samspil skipulagsáætlunar sveitarfélaga og stjórnunar og nokkur önnur atriði til.
Hvert þessara atriða metur hv. framsögumaður að hafi verið verst reifuð í þeirri vinnu sem nú liggur fyrir og er verið að vísa til ríkisstjórnar? Skilningur minn á hæstv. umhverfisráðherra hingað til hefur alltaf verið sá að ráðherrann teldi öll þessi mál vera rædd, tillit tekið til sjónarmiða, sameiginleg niðurstaða hafi náðst um þessi atriði nú þegar og að þau kæmu fram í því máli sem nú liggur fyrir. (Forseti hringir.) Fyrst er kallað eftir svörum um það hvort óbreytt ríkisstjórnarsamstarf kalli á (Forseti hringir.) að álitið sé að það sé skuldbindandi að klára málið á næsta kjörtímabili og síðan hvar áherslurnar liggja varðandi þessa fyrirvara.