151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

Hálendisþjóðgarður.

369. mál
[10:28]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Kolbeinn Óttarsson Proppé) (Vg) (andsvar):

Forseti. Aftur hvað varðar næsta hæstv. umhverfisráðherra, hver sem hann verður: Ég fór aðeins yfir það áðan að nánast allir flokkar, eða einstaklingar í flokkum, hafa komið að því að vinna að þjóðgarði á miðhálendinu. Ég taldi nokkuð víst að menn væru áfram á því. Formaður flokks hv. þingmanns, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, var forsætisráðherra í ríkisstjórn sem hóf þessa vinnu. Flokkssystir hæstv. fyrrverandi forsætisráðherra, Sigrún Magnúsdóttir, hóf málið en það var undir forsæti hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, þáverandi forsætisráðherra, sem vinnan hófst með þessari skýrslu sem er býsna góð. Margt úr henni er í frumvarpinu núna. Ég hef því bara litið svo á að almenn samstaða væri um að stofna þjóðgarðinn. Ég deili ekki alveg þessari sýn hv. þingmanns. Kannski ég botni hitt af því að nú veit maður aldrei hvað er klippt út úr því sem maður segir: Ég hef litið svo á að almenn samstaða væri um að stofna þjóðgarð en deilt væri um hvernig hann væri og hvernig hann yrði, mörk, stjórnfyrirkomulag. Ég deili ekki endilega þeirri sýn hv. þingmanns að hér sé einhver upptalning á því sem sé vanreifað. Það er alls ekki þannig. Hér er verið að fela ríkisstjórninni og hæstv. ráðherra að vinna ákveðna vinnu. Meiri hlutinn er að segja að í þeirri vinnu þurfi að taka á fullt af hlutum. Að sjálfsögðu kemur nýtt mál fram. Við vitum að málið lifir ekki. Það þarf að koma fram nýtt mál. Til að ná sátt teljum við að það þurfi að taka á þessum hlutum. Á sumum þeirra hefur mjög vel verið tekið í málinu eins og það er núna, að mínu viti, en sumum þarf að sinna örlítið betur o.s.frv.