Hálendisþjóðgarður.
Herra forseti. Ég þakka svarið, en það var rýrt. Átti hin víðtæka og harða andstaða sveitarfélaga hringinn í kringum landið að koma Framsóknarflokknum, samstarfsflokki Vinstri grænna í ríkisstjórn, á óvart? Bjuggust þeir ekki við þeirri andstöðu þegar þeir undirrituðu stjórnarsáttmálann? Átti það að koma Sjálfstæðismönnum á óvart að með stofnun svo stórs þjóðgarðs yrði lokað fyrir frekari orkunýtingu á því svæði sem þjóðgarðurinn tekur yfir? Átti það að koma þeim á óvart? Ef ég líki þessu við orrustu má segja að þegar menn þurftu að horfast í augu við fylkingar andstæðinganna hafi allir liðsmenn ríkisstjórnarinnar verið horfnir af vettvangi. Þegar hershöfðinginn leit um öxl voru allir liðsmennirnir horfnir og hann stóð einn. Vinstri grænir stóðu einir þegar þeir litu um öxl og leituðu eftir stuðningi samstarfsflokka sinna í ríkisstjórn. Þeir samstarfsmenn voru horfnir af vettvangi. Andstaðan sem var meðal sveitarfélaganna hringinn í kringum landið átti ekki að koma á óvart og þau áhrif sem málið hefði á framtíðarorkunýtingu. Það er samhengið í minni spurningu. Hv. þingmaður svaraði því ekki, og ekki heyrði ég hann svara hv. þm. Bergþóri Ólasyni í fyrra andsvari, hvort þeir flokkar sem nú eru í ríkisstjórn, ef þeir komast til valda aftur og mynda saman ríkisstjórn, muni þá klára málið, að þeir séu skuldbundnir til þess, eins og segir í áliti meiri hlutans. Það hlýtur að skuldbinda liðsmennina sem horfnir voru af vettvangi til að taka þátt í næstu orrustu af fullum hug. Er það ekki svo?