151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

Hálendisþjóðgarður.

369. mál
[10:37]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Kolbeinn Óttarsson Proppé) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Þó að Gestur á Hæli, langafi minn, hafi verið forsvarsmaður Óháðra bænda, sem síðar urðu að Framsóknarflokknum, og Ólafur Proppé, annar langafi minn, hafi setið á þingi fyrir einhvers konar útgáfu af Sjálfstæðisflokknum, frábið ég mér að þurfa að svara fyrir það hvað eigi að koma Sjálfstæðismönnum og Framsóknarmönnum á óvart, eins og hv. þingmaður spyr mig um. Ég er ættrækinn maður og held sögu fjölskyldu minnar ágætlega á lofti, en þessi tenging finnst mér ekki leggja þær skyldur á herðar mínar að ég svari fyrir það. Ég segi bara aftur: Er hv. þingmaður ekki að spyrja vitlausan þingmann að því sem hann fýsir að vita? Ég veit bara ekki hvernig ég get orðað það öðruvísi. Ég skil ekki alveg líkingaskóginn með óútfyllta tékkann og hershöfðingjann. Ég sagði í framsögu minni að ég hefði orðið vonsvikinn með að við hefðum ekki öll unnið að þessu saman. Ég varð fyrir vonbrigðum með að málið yrði ekki að veruleika. Ég skil að ýmsir utanaðkomandi þættir höfðu þau áhrif, og virði það, að þegar málið kom fram og var í vinnu nefndarinnar nú í vor gafst einfaldlega ekki tími til að klára þetta. Ég hefði engu að síður kosið að við hefðum öll einhent okkur í málið fyrr. En hvað það varðar hvað kemur þingmönnum Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins á óvart ætla ég ekki að vera Albanía í þessu samtali og ef hv. þingmaður á eitthvað ósagt við þingmenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks legg ég til að hann tali bara beint við þá.