Hálendisþjóðgarður.
Herra forseti. Við höfum hlýtt á hv. framsögumann meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar gera grein fyrir nefndaráliti með frávísunartillögu um lög um hálendisþjóðgarð. Það var sannast sagna raunalegt að heyra hvernig hv. framsögumaður leitaðist við að rekja og skilgreina ástæður þess að líf og heilsa þessa máls er komið í þetta horf og óvíst um örlögin. En hv. framsögumaður Kolbeinn Óttarsson Proppé er bjartsýnn á líf málsins og það skulum við vera öll. Ef hálendisþjóðgarðurinn væri skjólstæðingur heilbrigðiskerfisins, á hvaða deild væri hann staddur núna? Væri hann á slysa- og bráðadeild? Væri hann hugsanlega á endurhæfingardeild eða væri hann kominn á líknandi meðferð? Ég hef þá trú að málið sé ekki svo alvarlegt. Ef Samfylkingin hefði fengið að fara höndum um þennan góða og raunar mannvænlega skjólstæðing þá væri hann útskrifaður. Hann væri að vappa um í náttúrunni útitekinn og sællegur að njóta lífsins. Það skulum við vona að þetta málefni eigi eftir að fá að gera, að njóta lífsins og fá að dafna á sína vísu.
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir áliti umhverfis- og samgöngunefndar varðandi hálendisþjóðgarð, 1. minni hluta. Álitið til hljóðar á þessa leið:
„Fyrsti minni hluti telur það vera fyrirslátt að bera fyrir sig tímaskort vegna heimsfaraldurs kórónuveiru þegar kemur að jafn mikilvægu máli og hálendisþjóðgarður er. Fyrsti minni hluti fellst ekki á slíkar útskýringar og bendir á að frumvarpið var lagt fram fyrir rúmum sex mánuðum. Fyrir þann tíma hafði málið, sem var eitt af stærsta áherslumálunum í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, verið í a.m.k. tveggja ára samráðsvinnu og kynningarferli um allt land.“
Við meðferð málsins fékk nefndin til sín fjölda sérfræðinga og hagsmunaaðila og bárust 155 umsagnir vegna málsins. Ráðherra og ríkisstjórnin hafa haft nægan tíma til þess að vinna að málinu og hefur fjöldi funda átt sér stað í samfélaginu um þetta mál.
Meiri hlutanum er tíðrætt um samstöðu en ljóst er að pólitískan vilja skortir meðal ríkisstjórnarflokkanna til þess að klára málið. Það er staðan þrátt fyrir gríðarlegar málamiðlanir gagnvart þeim sem vilja halda því opnu að nýjar virkjanir verði bæði innan þjóðgarðsins og í jaðri hans.
Samfylkingin hefur barist fyrir þjóðgarði á miðhálendi Íslands alla tíð. Það eru því mikil vonbrigði að svæfa eigi nú eitt stærsta baráttumál umhverfissinna til margra ára.
Fyrsti minni hluti telur að sú tillaga meiri hlutans að vísa frumvarpinu til ríkisstjórnarinnar sé uppgjöf.
Undir þetta álit ritar sá sem hér stendur, Guðjón S. Brjánsson.