Hálendisþjóðgarður.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðjóni Brjánssyni fyrir framsöguna og samstarfið í nefndinni hvað þetta mál og önnur varðar, sem hefur verið prýðilegt. Mig langar til að spyrja hv. þingmann, sem kom inn á það í ræðu sinni að stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu, eða hálendinu, hafi verið baráttumál Samfylkingarinnar um langa tíð. Ég held að hv. þingmaður hafi meira að segja talað um það á þeim nótum að frá stofnun Samfylkingarinnar hefði þetta verið markmið hennar. En mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort Samfylkingin sé þeirrar skoðunar að frumvarpið hefði átt að samþykkja eins og það var lagt fram af hendi hæstv. umhverfisráðherra. Og ef ekki, hvar vandamálin liggja þá helst í því frumvarpi sem lagt var fram og kannski hvað hv. þingmaður telur vanta upp á hvað áherslur varðar og það að þrengja að orkunýtingarkostum, sem mér heyrist vera hluti af þeim markmiðum sem ætlunin er að ná fram.