151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

Hálendisþjóðgarður.

369. mál
[10:45]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta um.- og samgn. (Guðjón S. Brjánsson) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir andsvarið. Þetta málefni á sína löngu sögu og það er rétt að þetta hefur verið áhersluatriði hjá Samfylkingunni alveg frá stofnun, meira og minna verið á dagskrá. Það hefur verið borin fram tillaga, ég man ekki ártalið, hvenær það var, en ég man ekki betur en hér hafi verið lögð fram þingsályktunartillaga þessa efnis sem fyrsti vísir að þessu. Þetta málefni hefur fengið umfjöllun í þingflokknum og það eru ekki stór atriði sem við myndum gera athugasemdir við eins og málið var reifað undir lokin. Það er kannski ekki hægt, eftir því sem ég kemst næst, að setja fingurinn á einhver einstök atriði en eflaust hefði málið þróast með einhverjum hætti. Ef það hefði fengið enn frekari umræðu og verið gefið meira svigrúm til að fá frekara samráð við hagsmunaaðila hefði það þróast, kannski að einhverju leyti hnikast til, en í meginatriðum hefðum við fallist á frumvarpið eins og það lá fyrir.