151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

Hálendisþjóðgarður.

369. mál
[10:47]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta um.- og samgn. (Bergþór Ólason) (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Mig langar í seinna andsvari að koma aðeins inn á, og þá með vísan í almenn sjónarmið Samfylkingarinnar í þeim efnum, hvernig hv. þingmaður sér fyrir sér, að stofnuðum þjóðgarði á hálendinu, verði það niðurstaðan á næsta kjörtímabili eða síðar, frekari orkunýtingaráform innan hálendislínunnar eins og hún liggur fyrir í frumvarpinu, í samhengi við svokölluð orkuskipti sem þingheimur allur er upptekinn af flesta daga. Telur hv. þingmaður ekki að verið sé að þrengja um of að þeim orkunýtingarkostum sem við eigum, svo við lendum ekki í þeirri vondu stöðu að til að mynda stóriðjan á Grundartanga, álverið í Straumsvík, álverið fyrir norðan og fleiri slíkir stórkaupendur lendi í vandræðum?

Telur Samfylkingin og hv. þingmaður að það sé alveg óhætt að loka fyrir frekari orkunýtingarkosti á hálendinu ef horft er til þess sem lagt er upp með í frumvarpinu? Hver telur hv. þingmaður að áhrifin verði af því að lokað verði fyrir þá kosti? Mig minnir að Samfylkingin hafi stutt gerð Kárahnjúkavirkjunar, auðvitað áður en hv. þingmaður settist á þing. Ég verð nú að segja þetta með smá fyrirvara því að ég átta mig ekki alveg á hvar Samfylkingin stendur í þessum orkunýtingarmálum að teknu tilliti til yfirvofandi orkuskipta, svona til að tryggja að við verðum ekki rafmagnslaus.