151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

Hálendisþjóðgarður.

369. mál
[10:49]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta um.- og samgn. (Guðjón S. Brjánsson) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Bestu þakkir fyrir andsvarið, hv. þingmaður. Þetta er ágætisvinkill á þetta mál, þ.e. orkunýtingin. Hvað eigum við marga orkukosti? Er verið að þrengja að orkunýtingarmöguleikum í landinu? Ég tel það fjarri lagi. Hv. þingmaður sem formaður í umhverfis- og samgöngunefnd veit og þekkir að þarna greinir menn á eftir því við hverja er rætt og hvað er lagt til grundvallar. En ég tel að það sé alveg fráleitt að nýta það sem rök í því að þrengja að orkunýtingarmöguleikum á þessu svæði. Við skulum átta okkur á því að við höfum ekki enn séð þær tæknilegu breytingar sem munu eiga sér stað og þá auknu nýtingu á þeim kostum sem þegar eru fyrir hendi. Varðandi vatnsorkuna eigum við eftir að sjá gríðarlegar breytingar. Síðan eru auðvitað aðrir orkukostir sem eru ónýttir sem við eigum eftir að setja í farveg, þ.e. vindorkan og ég leyfi mér að nefna sjávarfallaorkuna sem við höfum lítið fjallað um, þar eru líka kostir. Þannig að ég tel að þetta sé fráleitt. Það sem hv. þingmaður vísar til varðandi stóriðjuna, þar eiga líka sömu tæknilegu umbreytingarnar og þróun sér stað, betri orkunýting. Ég tel að það sé ástæðulaust að fjalla um þetta með þessum hætti og ala á ótta.

Herra forseti. Ég vil ekki yfirgefa ræðustólinn að þessu sinni fyrr en ég hef þakkað hv. framsögumanni fyrir hans mikla starf og viðleitni við að koma þessu máli áfram. Það vantar ekkert upp á það að vilji hans var skýr. Hann missti ekki einbeitinguna og reyndi fram á elleftu stundu að hnika málinu áfram.