Hálendisþjóðgarður.
Forseti. Ég gat ekki betur heyrt en hv. þingmaður talaði um andstöðu meiri hluta þjóðarinnar við þjóðgarð á hálendinu. Þar sem ég veit að í umræðunni hafa andstæðingar þjóðgarðs haldið því mjög á lofti að við eigum að vera með réttar tölur og nýjustu kannanir þegar talað er um þessa hluti langar mig að spyrja hv. þingmann hvað hann er að vísa í þegar að þessu kemur. Ég gerði það að leik mínum á meðan ég sat undir ræðu hv. þingmanns að fletta upp könnunum um málið og í könnun sem Gallup gerði í janúar, þar sem meiri hluti var vissulega á móti frumvarpinu, þó ekki meiri hluti, innan við 50%, en mun fleiri á móti umræddu frumvarpi en með því, kom fram að ríflega 45% væru almennt fylgjandi því að hálendi Íslands yrði gert að þjóðgarði, 34% andvíg, fleiri fylgjandi en andvíg. Í könnun sem var kynnt að ég hygg núna í vikunni, sem Gallup gerði líka fyrir Landvernd, kom fram að rúmlega 43% eru hlynnt stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu, 34% andvíg. Umræða síðustu fimm mánaða, með öllum þeim gífuryrðum og frýjunarorðum um að allt fari til fjandans ef þetta verði að veruleika, hefur gert það að verkum að nákvæmlega jafn mörg eru andvíg þjóðgarði yfir höfuð á miðhálendinu og voru í janúar, 34%. Mig langar því að spyrja hv. þingmann í hvaða tölur hann er að vísa þegar hann segir að meiri hluti þjóðarinnar sé andvígur og hvort hann telji að við eigum að hlusta á niðurstöður þessara kannana þar sem kemur fram að fleiri, (Forseti hringir.) mun fleiri, eru fylgjandi þjóðgarði en andvíg.