151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

Hálendisþjóðgarður.

369. mál
[11:13]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta um.- og samgn. (Bergþór Ólason) (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. framsögumanni meiri hluta andsvarið. Í þessum efnum má auðvitað segja að það sé hægt að líta víða á en fyrst vil ég þó segja um það sem hv. þingmaður segir hér um þróun stuðnings eða andstöðu við þjóðgarðshugmyndirnar eins og þær liggja fyrir að þá teiknaði hv. framsögumaður meiri hluta upp þá mynd að þessi stuðningur hefði haldist þrátt fyrir umræðu uppfulla af gífuryrðum, — hv. framsögumaður hristir hér hausinn. (Gripið fram í.)Punkturinn hjá mér áður en ég kem að því er að umræðan á síðustu mánuðum sem hv. þingmaður vísaði til hefur auðvitað bara verið um málið eins og það liggur fyrir. Það liggja fyrir 158 umsagnir í málinu og staðreyndin er sú að yfirgnæfandi meiri hluti þeirra bendir á atriði sem þeir aðilar skoða í neikvæðu ljósi. Eins og ég kom inn á í andsvari við hv. þingmann hér fyrr í dag þá er það þannig að hver og einn umsagnaraðili er auðvitað ekki að fara í hvert einasta atriði frumvarpsins eins og það liggur fyrir, menn fara í það sem næst stendur. En afsakið, það er annað andsvar sem betur fer.

Varðandi þessa athugasemd mína um að meiri hluti þjóðarinnar sé andvígur stofnun hálendisþjóðgarðs þá hefði svo sem mátt orða það þannig að minni hluti þjóðarinnar styddi við þá hugmynd. En staðreyndin er sú að meiri hluti þjóðarinnar er andvígur því frumvarpi sem hér liggur fyrir eins og það liggur fyrir. Það sem vekur mér áhyggjur er sá verkefnalisti sem er lagður fyrir næsta umhverfisráðherra. Ég tel að núverandi umhverfisráðherra telji sig hafa unnið hann frá A til Ö.