151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

Hálendisþjóðgarður.

369. mál
[11:15]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Kolbeinn Óttarsson Proppé) (Vg) (andsvar):

Forseti. Ég óttast að hér sé á ferð það sem ég fór aðeins yfir í framsöguræðu minni, að við finnum okkur eitthvert horn til að vera á móti og erum þá á móti málinu öllu. Mér hefur þótt umræðan, og nú er ég ekki bara að tala um orð hv. þingmanns hér heldur umræðuna almennt, sérkennileg svo ekki sé meira sagt. Mér hefur þótt það nánast vera þjóðaríþrótt hjá ýmsum að tala þannig gegn þessu máli að ekki einu sinni þurfi að rekast utan í sannleikann, hvað þá meira. Ég hlustaði á hv. þingmann lýsa því, það var ekki hægt að skilja hann öðruvísi, hvað myndi breytast varðandi umferðarreglur á svæðum sem eru í dag annars vegar Vatnajökulsþjóðgarður og hins vegar friðlýst svæði eins og þjóðlendur, sem öll eru á einhvern hátt undir þeim reglum sem mælt er fyrir um í frumvarpinu sjálfu. Og svo er hreinlega sagt að meiri hluti þjóðarinnar sé andvígur þegar ekkert liggur fyrir um það í raun. Við leyfum okkur í þessu máli að koma með einhverjar fullyrðingar sem er kannski ekki endilega fótur fyrir af því að við upplifum heitar tilfinningar í málinu. Þetta er m.a. ástæðan fyrir að ég held að það sé mjög skynsamlegt að setjast betur yfir málið, að reyna að ná þessari sátt. Ég hygg að ef hv. þingmaður færi í þá vinnu sem ég hef farið í og talað við þann fjölda fólks sem ég hef talað við, þar með talið í sveitarfélögum sem hv. þingmaður vitnar mikið í, þá myndi hann komast að sömu niðurstöðu og ég, að það er mjög fær leið að því að ná sátt um þjóðgarð á miðhálendinu, sem sannarlega töluvert fleiri samkvæmt mælingum eru fylgjandi heldur en á móti. Og ég hygg að hv. þingmaður myndi kannski bara fagna þessari leið. Eða er það ekki það sem við viljum, að Alþingi afgreiði mál sem eru í anda þess sem flest þarna úti vilja?