151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

Hálendisþjóðgarður.

369. mál
[11:18]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta um.- og samgn. (Bergþór Ólason) (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Kolbeini Óttarssyni Proppé seinna andsvarið. Það var ekki ákveðin spurning í því en ég ætla að bregðast við þeim vangaveltum sem hv. þingmaður setti hér fram. Það má vel til sanns vegar færa að margir sem ræða þetta mál ræði það út frá ákveðnum anga þess, ekki málinu í heild af því að málið er gríðarlega stórt. En ég fór hér í framsögu minni fyrir nefndaráliti 2. minni hluta yfir býsna stóran hluta málsins í heild sinni og sveitarfélögin fengu þar kafla þó að hann væri með þeim styttri. Ég verð að viðurkenna að ég hélt að ég hefði ekki nema úr 20 mínútum að moða þegar ég rammaði inn ræðuna þannig að sveitarfélögin hefðu fengið stærri skammt hefði ég áttað mig á að sá tími væri örlítið rýmri.

Það eru fáir sem hafa tækifæri til þess að setjast yfir mál eins og þetta í heild sinni. En mér þykir fullkomlega eðlilegt að aðilar horfi á sitt nærsvæði, ef svo má segja, innan frumvarpsins, hvort sem það eru einstaklingar, fyrirtæki, sveitarfélög eða hverrar gerðar sem sá hagaðili kann að vera. Þannig að ég skil áhyggjur hv. framsögumanns af þessum þætti en ég vil þó ekki taka undir þetta því að mér þykir bara sjálfsagt og eðlilegt að menn horfi á það sem þeim er næst í hverju máli fyrir sig. En það breytir því ekki að það eru töluverðar líkur á því að þegar sýnin færist yfir á víðara svið, ef tími er til hjá slíkum aðila, þá eru þessi atriði auðvitað með einum eða öðrum hætti öll samtengd í frumvarpi sem þessu. (Forseti hringir.) Þannig að þá þykir mér líklegt að það yrði svipuð lína hvað aðra þætti málsins varðar þegar menn hafa einarða afstöðu í einum hluta þess.