Hálendisþjóðgarður.
Virðulegi forseti. Hér ræðum við tillögu um að frumvarpi um hálendisþjóðgarð verði vísað til ríkisstjórnarinnar og umhverfis- og auðlindaráðherra. Tillagan gerir ráð fyrir að framhaldið verði byggt á þeirri vinnu sem nú þegar hefur farið fram við fyrirliggjandi frumvarp og í umfjöllun um það í margs konar fyrri vinnu almennings og stjórnvalda, með það að leiðarljósi að vinna að frekari sátt um umgengni, nýtingu og vernd á hálendinu. Ég álít að sú vinna geti leitt til grundvallarbreytinga á útfærslu þjóðgarðs á miðhálendinu hvað varðar umfang og samspil við aðrar stofnanir, sveitarfélög og útfærslu á regluverki. Þá vil ég hér þakka hv. framsögumanni, Kolbeini Óttarssyni Proppé, vinnuna með málið sem framsögumaður umhverfis- og samgöngunefndar og staðfesta að mér finnst hann hafa lagt sig sérstaklega fram um að vinna með ólík sjónarmið og greina þau og átta sig á þeim.
Aftur að nefndarálitinu sem hv. framsögumaður gerði grein fyrir hér áðan. Á meðal þeirra atriða sem meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar tiltekur í nefndaráliti að nauðsynlegt sé að taka aftstöðu til við áframhaldandi vinnu eru mörk þjóðgarðs og verndaflokkar og að í tengslum við mörkin verði hugað að því hvernig afstaða sveitarfélaga gagnvart þeim verði leidd fram. Á meðal þeirra atriða eru umgjörð um hefðbundnar nytjar, veiðar, orkuvinnslu og flutningsleiðir raforku og ítarleg greining á fjárþörf til lengri tíma og áætlun um fjármögnun, bara svo að nokkur atriði séu nefnd úr nefndarálitinu. Fjöldi stofnana, einstaklinga, sveitarfélaga, almannaheillafélaga og fyrirtækja kemur nú að ýmiss konar verkefnum á hálendinu. Brýnt er að allir þessir aðilar geti unnið í takt til framtíðar, hvort sem þeir vinna saman undir einum hatti eða fleirum.
Í nefndarálitinu dregur meiri hlutinn fram að mikilvægt sé að halda áfram víðtæku samráði við alla hagaðila. Ég álít að virk þátttaka þeirra í því skipti miklu máli og að þeirri vinnu þurfi að gefa lengri tíma. Ég hef fylgst með umræðu um þjóðgarð á hálendinu lengi en hún hefur ekki á öllum tímum náð til jafn stórs hóps og síðustu mánuði. Það er mikilvægt að sem flestir taki þátt í umræðunni. Við megum heldur ekki gleyma því að við erum nú þegar með þjóðgarð á hálendinu, Vatnajökulsþjóðgarð, sem við þurfum að hlúa að og efla, ekki síst í kjölfar áskorana sem Covid hafði í för með sér. En við getum líka lært margt af starfsemi Vatnajökulsþjóðgarðs, bæði af ýmsu við stofnun hans og í rekstri og því sem vel hefur gengið og því sem miður hefur farið.
Í mínum huga er það aðkallandi að umræða um hálendið sé málefnaleg og byggi á staðreyndum og þekkingu, bæði á náttúrunni og samfélögum á og við hálendið. Ekki er víst að sömu leiðirnar henti um allt land, sama stærðin hentar ekki alltaf öllum. Ég hef notað mikið af vinnutíma mínum síðustu árin til þess að kynna mér málefni hálendisins, fylgjast með umræðunni og hlusta á ólík sjónarmið varðandi umgengni, nýtingu og vernd. Ég er stöðugt að læra eitthvað nýtt og samhliða breytast líka hugmyndir mínar. Takist að vinna með og skýra þau atriði sem sérstaklega eru dregin fram í greinargerð með frávísunartillögunni stuðlum við að upplýstri umræðu um ólík álitaefni við stjórnsýslu á hálendinu. Þá mun líka öllum sem hagsmuna eiga að gæta reynast auðveldara að átta sig á hvaða leiðir er heppilegast að fara í því víðtæka samstarfi sem við íbúar Íslands þurfum að eiga um hálendið, hvernig sem allt veltist. Afurð þeirrar vinnu ætti einnig að skila svörum við þeim álitaefnum sem dregin voru fram í fyrirvörum sem þingflokkur Framsóknarflokksins setti fram við afgreiðslu málsins til Alþingis og ég fór yfir við 1. umr.
Virðulegi forseti. Það er ekki skynsamlegt að samþykkja fyrirliggjandi frumvarp um þjóðgarð. Það er brýnt að vinna áfram að upplýstri umræðu og frekari sátt um umgengni, nýtingu og vernd á hálendinu.