151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

Hálendisþjóðgarður.

369. mál
[11:25]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta um.- og samgn. (Bergþór Ólason) (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Líneik Önnu Sævarsdóttur fyrir samstarfið í nefndinni í þessu máli og öðrum. Frávísunartillaga frá fulltrúum meiri hlutans í nefndinni liggur fyrir. Eins og hv. þingmaður hefur eflaust veitt athygli, af því að hún hefur setið undir umræðunum hingað til, þá er mér nokkuð umhugað um að átta mig á hvað þessi afgreiðsla þýðir raunverulega, verði ríkisstjórn Íslands sett saman úr sömu flokkum á næsta kjörtímabili og á þessu sem nú er að líða. Það er beinlínis sagt hér, með leyfi forseta:

„Meiri hlutinn telur að til að ná slíkri sátt“ — þar sem er búið að telja upp alla punktana sem þarf að horfa til, sem núverandi umhverfisráðherra virðist reyndar telja að búið sé að gera — „þurfi að gefa málinu lengri tíma og mikilvægt sé að halda áfram að vinna að því í víðtæku samráði við alla hagaðila. Að þessu virtu leggur meiri hlutinn til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar og umhverfis- og auðlindaráðherra verði falið að leggja fram nýtt frumvarp um málið …“

Spurning mín til hv. þingmanns er: Lítur þingmaðurinn þannig á að þetta sé í rauninni skuldbinding að óbreyttu ríkisstjórnarsamstarfi, að þetta sé skuldbinding Framsóknarflokksins til þess að málið verði sett í sambærilegan farveg og var á þessu kjörtímabili og að málið verði klárað á grundvelli þessarar nýju vinnu og afgreitt í gegnum þingið?