Hálendisþjóðgarður.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Auðvitað skiptir sú vinna sem fer í gang í framhaldinu miklu máli. Það er litið svo á að það séu mörg atriði sem vinna þarf með varðandi stjórnsýslu hálendisins, eins og ég kom inn á í ræðu minni. Og auðvitað ræðst það eftir kosningar hvernig menn ganga til næsta stjórnarsamstarfs, hverjir það verða sem gera það. En ég álít líka að það sé óhjákvæmilegt að halda áfram samstarfinu um hálendið, eins og ég kom inn á. Þar eru margir hagaðilar að vinna og þeir þurfa að vinna saman. Það eru sveitarfélög, það eru fyrirtæki, það eru ýmiss konar almannaheillafélög, ferðafélög, landgræðslufélög, veiðifélög — við getum haldið lengi áfram. En það er alveg sama hvað verður, hvort sem Vatnajökulsþjóðgarður stækkar, hvort sem það verður til stærri þjóðgarður eða nýr þjóðgarður eða nýir þjóðgarðar, það þarf alltaf að vera samstarf um hálendið.