Hálendisþjóðgarður.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. En það gengur hægt að færast nær því hver sýn stjórnarflokkanna er á áhrif þessarar afgreiðslu. Bara til upprifjunar þá segir í stjórnarsáttmálanum, með leyfi forseta:
„Stofnaður verður þjóðgarður á miðhálendinu í samráði þverpólitískrar þingmannanefndar, umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, sveitarfélaga, náttúruverndar- og útivistarsamtaka og annarra hagsmunaaðila.“
— Engir fyrirvarar, bara að stofnaður verði þjóðgarður.
Nú er farið í þá vegferð að uppáleggja næsta umhverfisráðherra að vinna vinnu sem mér sýnist í öllum meginatriðum vera sama vinnan og unnin var á þessu kjörtímabili og er nú að, ég ætla ekki að segja sigla í strand en er afgreidd með frávísunartillögu meiri hluta nefndarinnar.
Í fyrsta lagi: Hvað er það af fyrirvörunum sem tilgreindir eru í þessu nefndaráliti sem ekki var gert ráð fyrir eða ekki var unnið að í þeirri vinnu sem nú liggur fyrir og grundvallar frumvarpið? Því að mér sýnast þetta vera sömu þættirnir. Hins vegar vil ég spyrja varðandi fyrirvara Framsóknarflokksins sem koma augljóslega ekki fram í stjórnarsáttmálanum. Það kom nokkuð á óvart að formaður Framsóknarflokksins, hæstv. samgönguráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson, talaði á þeim nótum í Víglínunni á Stöð 2 að fyrirvararnir hefðu verið settir þar fram strax á þeim tímapunkti. Var það bara misskilningur formanns Framsóknarflokksins eða mögulega mismæli, sem er auðvitað alltaf möguleiki?