151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

Hálendisþjóðgarður.

369. mál
[11:32]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Eins og ég hef ítrekað sagt hér í ræðustól þá snýst sátt um verkefnið ekki um það að við sem hér störfum, í sal Alþingis, náum einhverri sátt okkar í milli. Þetta snýst um sátt í samfélaginu og sátt og sameiginlegan skilning á þeim verkefnum sem við erum að glíma við. Mitt álit á þessu verkefni sem við fjöllum um hér er, eins og segir í stjórnarsáttmálanum og hv. fyrirspyrjandi fór vel yfir, að það þarf að vinna þetta verkefni með fjölmörgum aðilum. Mín niðurstaða er einfaldlega sú að það þurfi lengri tíma til að finna heppilegustu leiðina til samstarfs. Það sagði ég í ræðu minni, það sagði ég hér við 1. umr. og það segi ég enn og aftur: Það þarf lengri tíma. Það var ekki að ástæðulausu sem ég kom inn á það að ég hef lært mjög mikið um ólík verkefni í þessari vinnu og það hefur tekið mjög langan tíma. Mér finnst mjög mikilvægt að samstarfsaðilar fái tækifæri til að setja sig inn í ólík mál. Við leggjum meiri vinnu í að skýra ólíka þætti sem taldir eru upp í atriðalistanum í tillögu meiri hlutans þannig að sem allra flestir geti áttað sig á mögulegum leiðum til að leysa þessi 8–10 eða 12 atriði sem þarna eru talin upp og tekið upplýsta afstöðu til þeirra um hvaða leið sé heppilegust.