151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

Hálendisþjóðgarður.

369. mál
[11:34]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Það er alveg með ólíkindum að hv. þingmaður geti ekki bara svarað þeim spurningum sem beint er til hennar. Það er ekkert verið að spyrja um hvernig þingmanninum líður eða hvernig þingmaðurinn vill vinna verkefnin. Hér er verið að spyrja: Hvar eru þessir fyrirvarar sem menn þykjast hafa sett inn í stjórnarsáttmálann? Hvar eru þeir? Það er enginn fyrirvari í stjórnarsáttmálanum. Þetta eru eftiráskýringar. Já, hv. þingmaður þarf kannski að fá leiðbeiningar frá fulltrúa Vinstri grænna, það getur vel verið. Mig langar hins vegar að spyrja þingmanninn og ég ætla að vona að þingmaðurinn hlusti nú og svari þeim spurningum. Hér stendur í afgreiðslu nefndarinnar að halda eigi áfram með málið. Er Framsóknarflokkurinn að plata Vinstri græna þegar hann samþykkir að halda áfram með málið eða ætlar Framsóknarflokkurinn að halda áfram með þetta mál?