Hálendisþjóðgarður.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Gunnari Braga Sveinssyni andsvarið. Ég veit ekki hvað ég er búin að segja það oft hér í dag og ég mun segja það einu sinni enn: Það er mikilvægt að halda áfram að vinna með samstarf á hálendinu og með öllum þeim sem þar starfa. Framsóknarflokkurinn vill gera það. Meiri hlutinn leggur til í frávísunartillögu sinni að haldið verði áfram með vinnuna. Ég veit ekki frekar en aðrir hvað nákvæmlega kemur út úr henni, hvað skýrist, til hvaða breytinga sú vinna mun leiða, en ég er alveg sannfærð um að hún mun leiða til breytinga. Hv. framsögumaður málsins getur væntanlega staðfest það að hann hefur, bæði innan umhverfis- og samgöngunefndar og í samtölum við ýmsa fagaðila, farið í gegnum mögulegar leiðir til breytinga sem eru líklegar til að mæta ýmsum þeim sjónarmiðum sem komu fram fyrir nefndinni. Þau atriði sem dregin eru fram í frávísunartillögu meiri hlutans, inn á þau er öll komið með einhverjum hætti í skýrslu þverpólitísku nefndarinnar. Það þarf einfaldlega að halda áfram að vinna með þessi atriði. Þannig verður upplýst umræða, þannig heldur vinnan áfram að skila okkur niðurstöðu sem líkleg er til að skila sem bestri umgjörð (Forseti hringir.) um umgengni, nýtingu og vernd.