Hálendisþjóðgarður.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að tala loksins skýrt í þessu máli, tala loksins skýrt um það að Framsóknarflokkurinn er búinn að skuldbinda sig til að halda áfram með þetta mál, halda áfram með það verkefni sem farið var af stað. Annaðhvort væri það nú eftir að hafa sett út frávísunartillögu með þessum texta, annað væri það nú. Það hefði verið skömm að því ef flokkurinn hefði verið að gera dyraat eða gabba samstarfsflokkinn, Vinstri græn, með því að vera með einhverjar aðrar hugsanir í þessu máli öllu saman. Þannig að ég þakka hv. þingmanni fyrir að tala skýrt um það að Framsóknarflokkurinn, eins og fram kemur í frávísunartillögu og áliti meiri hlutans, ætlar að vinna áfram að stofnun þessa þjóðgarðs fái hann afl til þess eftir kosningar.