151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

Hálendisþjóðgarður.

369. mál
[11:39]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Hálendisfrumvarpið er dautt, lengi lifi hálendisþjóðgarðurinn. Svona var tölvupóstur sem mér barst þegar fréttir bárust af afdrifum þessa frumvarps. Það sýnir býsna vel stöðuna, alla vega í hugum margra. Við stóðum hér í þingsal fyrir hálfu ári og ræddum stofnun hálendisþjóðgarðs, þ.e. frumvarpið. Það varð strax ljóst af þeim mikla fjölda þingmanna sem tóku til máls í 1. umr. að þetta er töluvert hitamál. Umræðan í þingsal á þeim tíma endurspeglaði raunverulega umræðuna í samfélaginu. Við þingmenn allir, ekki síst þau okkar sem sitjum í hv. umhverfis- og samgöngunefnd, fengum strax í aðdragandanum gríðarlegan fjölda skriflegra erinda, formlegra jafnt sem óformlegra, símtöl, fundarbeiðnir, beiðnir um samtal á næsta kaffihúsi og hvatningar í allar mögulegar áttir. Þessi erindi, símtöl og fundarbeiðnir hafa verið alls konar. Það sýnir að um frumvarpið eru skiptar skoðanir og að þetta mál skiptir fólk máli.

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur er stofnun hálendisþjóðgarðs eitt af forgangsmálunum. Það er óumdeilt. Tvær fyrri ríkisstjórnir höfðu kannað forsendur fyrir slíku verkefni og lagt áherslu á aukna vernd á þessu svæði. Það er kannski ágætt að fara aðeins yfir þá línu. Það var árið 2016 sem nefnd um forsendur fyrir þjóðgarði á miðhálendinu var skipuð. Það var í ríkisstjórnartíð Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Ári síðar, við ríkisstjórnarmyndun Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar, var talað um aukna vernd miðhálendis í stjórnarsáttmála. Núverandi ríkisstjórn er síðan með það mjög skýrt í stjórnarsáttmálanum að stofna skuli slíkan þjóðgarð. Þannig var málinu haldið áfram.

Eins og komið hefur fram í fyrri ræðum var síðan í upphafi þessa kjörtímabils skipuð þverpólitísk nefnd þingmanna og fulltrúa frá sveitarstjórnum og ráðuneyti og henni falið að vinna þessu máli ríkisstjórnarinnar, og að einhverju leyti fyrri ríkisstjórnar, framgöngu. Það var svo síðla árs 2019 sem nefndin skilaði skýrslu og tillögum til ráðherra. Ég sat í nefndinni fyrir hönd þingflokks Viðreisnar. Það getur verið býsna snúið fyrir þingmann í stjórnarandstöðu að taka afstöðu til þess að sitja í nefnd sem hefur samkvæmt skipunarbréfi ekki bara það verkefni að kanna grundvöll máls heldur vinna því framgöngu, mál sem er í stjórnarsáttmála ríkjandi ríkisstjórnar. Upphaflega var hugmyndin að nefndin ynni frumvarp um málið. Við vorum nokkur, ekki síst úr stjórnarandstöðunni, sem settum okkur af þessum sökum á móti því. Eftir samtöl innan nefndar, þegar hún var farin af stað, var þessu breytt í að það kæmi skýrsla og síðan myndi frumvarp ríkisstjórnarinnar eftir atvikum byggja á slíkri skýrslu.

Ég hef bara gott eitt um störf nefndarinnar að segja. Við höfðum víðtækt samráð, starfið var gagnsætt og ég hafði sjálf mikið gagn og nokkuð gaman af þeirri vinnu sem þar fór fram. Þegar leið að lokum þeirrar vinnu haustið 2019 tóku nefndarmenn, hver um sig, síðan afstöðu til þess hvort þeir vildu vera á skýrslunni sem var afurð vinnu nefndarinnar. Ég tók þá afstöðu að vera með eftir að hafa á vinnslutíma nefndar komið að ákveðnum sjónarmiðum mínum og Viðreisnar sem lutu m.a. að fjármögnun hálendisþjóðgarðs og hversu mikilvægt það væri að verkefnið yrði frá upphafi fjármagnað með viðunandi hætti þar sem við byggðum á reynslu og lærdómi af rekstri annarra þjóðgarða og friðlýstra svæða. Aðrar athugasemdir lutu að atvinnuháttum og atvinnumálum á svæðinu, för fólks um svæðið, mismunandi ferðamátum, aðkomu sveitarfélaga og raunverulegu samráði og svo ýmsu öðru sem kemur að útfærslu á samspili náttúruverndar og nýtingar.

Við í Viðreisn höfum alla tíð talað fyrir mikilvægi þess að samhliða öflugri náttúruvernd séu auðlindir landsins nýttar með ábyrgum sjálfbærum hætti. Við viljum gera almenningi kleift að njóta þessa fjársjóðs sem íslensk náttúra er til útivistar og veiða, ásamt því að auka virðingu fyrir landinu og stuðla þannig að bættri umgengni. Jafnframt deilum við þeirri hugsun með fjölmörgum að styrkja þurfi byggð, markmiðin eigi að vera að styrkja byggð í nágrenni slíkra þjóðgarða, skapa atvinnu og aðstæður fyrir fjölbreyttar rannsóknir, auka víðsýni og tengja fólk. Þetta eru ekkert lítil markmið en reynslan sýnir að það er hægt. Reynslan sýnir að ef vel er gert þá er það afurð slíkra þjóðgarða. Þetta hefur verið leiðarljós okkar í þessu máli. Líkt og fjölmargir Íslendingar hef ég verið ferðalangur í þjóðgörðum erlendis og notið þess mjög. Þar hafa þessir þættir gjarnan farið saman, samkvæmt því sem ég best veit og upplifi sem ferðalangur og út frá því sem ég hef kynnt mér í tengslum við starf nefndarinnar, þ.e. náttúruvernd, upplifun ferðafólks og uppbyggingu atvinnulífs.

Viðbrögð fjölmargra hagaðila í samfélaginu, sveitarfélaga, aðila ferðaþjónustunnar, náttúruverndarsinna og áfram mætti telja, hafa verið á þann veg að nokkuð hefur skort á að við séum komin á þennan stað. Síðari hluta desember 2019, í sama mánuði og skýrslan var klár, voru drög að frumvarpi umhverfisráðherra um hálendisþjóðgarð lögð inn í samráðsgáttina. Þangað komu rúmlega 70 umsagnir, formlegar sem óformlegar, og þeim umsögnum hefur sannarlega ekki fækkað eftir að málið fór í þinglega meðferð. Í kjölfarið fóru af stað gagnrýnisraddir, nokkuð skipulagðari en áður hafði verið og þær háværustu voru ekki síst úr röðum einhverra ríkisstjórnarflokka. Nú er ég alls ekki að segja að innan stjórnarflokka megi ekki vera skiptar skoðanir um mál, þaðan af síður risamál eins og þetta, sannarlega ekki. En það eru kannski þær skiptu skoðanir og tengsl þeirra við málsmeðferðina, þ.e. þessa frávísunartillögu, sem skipta máli í samhengi við þá stöðu sem nú er uppi.

Fyrst aðeins almennt um gagnrýnina, sem sneri ekki síst að því að þjóðgarðurinn myndi skerða verulega skipulagsvald þeirra sveitarfélaga sem eru við jaðar fyrirhugaðs þjóðgarðs og skerða forræði þeirra yfir landi innan landamæra sveitarfélaga. Það heyrðust líka gagnrýnisraddir um að sveitarstjórnir fámennra sveitarfélaga myndu ráða hlutfallslega of miklu vegna þess að þær hefðu tækifæri á að skipa meiri hluta stjórna, bæði þjóðgarðsins og rekstrarfélaga, og hefðu þannig of mikið vald í samanburði við aðra hagaðila, annars vegar ferðaþjónustuaðila og ferðafólk, sem er alls ekki endilega sami hagsmunahópurinn, og svo náttúru- og umhverfisverndarsamtök. Svo má bæta við að ef einhverjir ættu að vera ósáttir við stjórnsýslu þjóðgarðsins þá væru það e.t.v. íbúar í þéttbýli vegna þess að við erum jú að tala um þjóðgarð allrar þjóðarinnar. En það eru akkúrat íbúar í sveitarfélögum sem liggja fjær, í þeim þéttbýlustu, sem hafa samkvæmt þessu ekkert vald yfir því landi sem verið er að stofna þjóðgarð í sem er jú sameign þjóðarinnar. Þannig að flækjustigin voru ýmiss konar og þegar á leið urðu líka áberandi raddir ferðaþjónustuaðila sem töldu vegið að atvinnugrein sinni eða möguleikum til frekari uppbyggingar. Ég get þulið upp fleiri aðila. Það voru þeir sem hafa í gegnum árin haft rétt á nytjum landsins, ég get m.a. talað um bændur. Listinn er endalaus. Það er ekkert óeðlilegt við að það sé nær endalaus listi af fólki sem hefur hagsmuna að gæta, hefur skoðanir og vill koma sínum málefnum á framfæri.

En það er þetta með samráðið. Staðan var sem sagt sú að þegar málið kom til þinglegrar meðferðar í kringum síðustu áramót, eftir að hafa verið flutt á þingi fyrir áramót, rætt og síðan farið inn í nefnd í upphafi árs, fjölgaði enn þeim sem höfðu óformlega og formlega samband vegna málsins. Maður upplifði einhvern veginn hvar sem maður kom að fjöldi fólks væri orðið að sérfræðingum í hálendisþjóðgarðinum og málefnum hans. Alls staðar voru menn til í að ræða þjóðgarðinn. En eftir því sem á leið voru einhvern veginn allir að ræða hugmynd um þann þjóðgarð sem þeir töldu að verið væri að stofna og maður áttaði sig á því að oft var mjög mikið bil þar á milli. Það var komin mjög óljós mynd vegna þess að einhvern veginn höfðu orðið til nokkrar brautir umræðu úti í samfélaginu, ef svo má segja. Þetta var mjög sérkennileg mynd af því hvað var í gangi í hugum margra sem höfðu áhuga á málinu, óljós mynd. Það verður að segjast eins og er að hafi það verið ætlunin af hálfu ríkisstjórnarflokkanna þriggja, Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna, að skýra og ná sátt um þetta risastóra og mikilvæga mál á þessum tíma þannig að allir væru að róa í sömu átt og vinna að því sameiginlega að skilgreina hvað þyrfti að gera betur, vinna að því sameiginlega að taka hagsmuni allra með í reikninginn, vinna að því sameiginlega að finna leiðir til að sætta ólík sjónarmið, þá mistókst það. Það er kannski stóri punkturinn hér.

Svo má líka snúa þessu við og segja að ef marka má framgöngu einstakra stjórnarliða og hvernig þeir hafa nálgast málið leynt og ljóst á kjörtímabilinu þá sé ekkert endilega víst að ætlunin hafi verið að ná sátt um málið. Og við stöndum hér. Ég trúi því að hæstv. umhverfisráðherra hafi unnið málið af miklum heilindum frá upphafi, en ég er líka þeirrar skoðunar að þeirri vinnu hefði mátt stýra betur og forgangsraða. Mögulega erum við, ég og hæstv. umhverfisráðherra, ekki sammála um hvað felst í hugtakinu samráð. Mér finnst sorglegt að upplifa að ríkisstjórnin sé að missa þetta mikilvæga tækifæri úr höndum sér, tækifæri til að koma reglu á hálendið okkar í sátt við íbúa og sveitirnar sem breytingarnar hafa hvað mest áhrif á. Auðvitað er þetta allt of stórt og mikilvægt mál til að þvinga það af stað. Það sjáum við öll úr því sem komið er. Við stöndum hér á síðasta degi þings, á síðasta þingvetri þessa kjörtímabils, stjórnartíðar Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, og þá fær meðferð þessa máls auðvitað falleinkunn, falleinkunn út frá því sem stendur í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar fullum fetum: Stofnaður verður þjóðgarður á miðhálendinu. En það er auðvitað ekki þannig að þessi niðurstaða sé öllum stjórnarflokkunum þremur þungbær. Þingflokkur Vinstri grænna er einn í þeirri sorg. Vinir þeirra í Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki hrósa frekar happi, enda má vera löngu ljóst að þetta loforð í stjórnarsáttmála átti ekkert endilega að halda í heiðri.

Herra forseti. Nú er það ekki svo að ég sé ósátt við þessa niðurstöðu, þessa frávísun. Í nefndaráliti stjórnarmeirihluta umhverfis- og samgöngunefndar með frávísunartillögunni segir að meiri hlutinn telji að sú umræða sem fram hefur farið um þjóðgarð á síðustu árum, bæði um fyrirliggjandi frumvarp og fyrri vinnu, sé nauðsynlegur þáttur í því ferli að ná sátt um málið. Síðan eru talin upp atriði sem vinna þurfi frekar í, og það eru akkúrat þau atriði sem þarf að vinna frekar í. Hins vegar er eðlilegt að setja spurningarmerki við það, í ljósi þess hvernig þetta kjörtímabil hefur verið nýtt, hvort áframhaldandi samstarf ríkisstjórnarflokkanna þriggja, sem þau hafa lýst yfir að þau hafi í huga að haldi áfram með eftir kosningar og hafa óskaði eftir umboði til þess, hvort ástæða sé fyrir þá sem vilja vinna þessu máli framgang að halda að það muni frekar gerast þá.

Þetta er hvorki óeðlileg né slæm afgreiðsla í ljósi stöðunnar. Það er staðan sem nú er uppi sem er gagnrýnisverð og vekur upp spurningar um nálgun stjórnarflokkanna þriggja í þessari vegferð. Á þeim tíma sem ríkisstjórnin, sem þingheimur, sem þingið hefur haft til að vinna þetta mál hafa fulltrúar stjórnarflokkanna talað í kross. Hæstv. umhverfisráðherra hefur lýst því ítrekað yfir, allt fram á síðustu stundu, að tekið hafi verið fullt tillit til allra þeirra ólíku sjónarmiða sem fram hafa komið. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hafa ítrekað lýst því yfir að ekki hafi verið tekið tillit til allra þeirra ólíku sjónarmiða sem fram hafa komið.

Herra forseti. Á þeim 16 fundum umhverfis- og samgöngunefndar þar sem málið var til umfjöllunar fór miklu meira fyrir gestakomum frá hluta þeirra 158 aðila sem sendu inn umsagnir en fyrir efnislegri umræðu nefndarmanna um málið, tilraunum til að koma til móts við sjónarmið, umræðu um breytingar á málinu sem gætu skapað sátt, pólitísku samtali í hinni þinglegu meðferð. Ég geri alls ekki lítið úr vinnu framsögumanns málsins, hv. þm. Kolbeins Óttarssonar Proppé, heldur er ég frekar að reyna að varpa ljósi á þá staðreynd að hv. þingmaður virkaði frekar einmana í þeirri vinnu þegar litið er til fimm manna meiri hluta nefndarinnar, meiri hluta ríkisstjórnarinnar á þingi og skýrrar framsetningar í stjórnarskrá ríkisstjórnarinnar. Hv. framsögumaður stóð þannig með bolta í fanginu sem hefði betur farið á því að hefði verið sendur mun fyrr á tímabilinu.

Nú getur vel verið að sú vinna sem ég er hér að lýsa að ég kannist ekki við, að þær samræður, þær tilraunir til að ná samstöðu um hvað þyrfti til að sigla málinu í höfn, hafi frekar átt sér stað meðal fulltrúa stjórnarflokkanna þriggja. Það væri þá langt frá því að vera eina málið þar sem mesti ágreiningurinn er meðal þeirra þriggja flokka og langt frá því að vera fyrsta málið sem deyr í faðmi þeirra.

Herra forseti. Staða máls er sú sem hún er. Verkefnið fram undan er að mínu mati að finna leiðir til þess að landsmenn allir eigi virkilega hlutdeild í ávinningi af framkvæmdinni, af framtíðarfyrirkomulagi hálendisins. Við þurfum að halda fókus á það sem skiptir máli, þ.e. vernd umhverfisins og náttúrunnar, öruggt aðgengi þjóðarinnar að þeim náttúruperlum sem við eigum og virðingu fyrir þekkingu íbúa hinna dreifðari byggða landsins á nærumhverfi sínu. Þetta verkefni þarf að fara saman við viðurkenningu á þeirri staðreynd að við þurfum orkuöflun í landi okkar. Við þurfum hana ekki síst í ljósi þeirra háleitu markmiða sem við höfum um orkuskipti í náinni framtíð í þágu umhverfisverndar. Með fókus á frelsi, einfaldleika og náttúruvernd í stað stjórnlyndis, stofnanaræðis og eftirlitshneigðar getur hálendisþjóðgarður verið grundvöllur framfara, grundvöllur verðmætasköpunar, grundvöllur atvinnusköpunar, ef rétt er á málum haldið, til viðbótar við það mikilvæga náttúruverndarhlutverk sem slíkur miðhálendisþjóðgarður gegnir. Það hlýtur að vera leiðin okkar héðan í frá.