Hálendisþjóðgarður.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Hönnu Katrínu Friðriksson fyrir ræðuna og samstarfið í nefndinni í vetur í tengslum við þetta mál. Það eru nokkur atriði sem komu upp í huga mér þegar ég hlustaði á ræðuna. Eitt þeirra kviknaði við upphafsorð hv. þingmanns þar sem farið var í starfið í nefndinni þar sem við sátum bæði til að byrja með. Ég sagði mig reyndar frá þeirri vinnu undir lokin með skýringum sem ég hef gefið á öðrum vettvangi. En það sem kemur mér á óvart í tengslum við frávísunartillögu meiri hlutans er að mér þykja skína í gegn þar einhver skilaboð um að vinnan sem nefndin vann og átti að vera grundvöllur þessarar lagasetningar hafi hreinlega ekki verið unnin og það þurfi bara að fara að vinna þessa vinnu núna.
Ég skil það sem svo að hæstv. umhverfisráðherra telji sig hafa unnið þessi atriði samviskusamlega við vinnslu málsins. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvernig hún meti þetta eftir að hafa setið í stýrihópnum og ritað undir skýrsluna. Var grundvallarmunur á þeim tillögum sem þar voru gerðar á milli skýrslunnar, hinar endanlegu, og síðan frumvarps ráðherra? Ég skil það þannig að ráðherra telji sig þegar hafa gert þetta allt saman. Þetta virðist einhvern veginn vera tilraun til þess að svæfa málið og setja í einhvern farveg þannig að allir haldi andlitinu. En það sem ég skil eiginlega síst af öllu er það upplegg (Forseti hringir.) að það eigi eftir að vinna þessa vinnu sem þó var unnin í nefndinni sem við sátum bæði í (Forseti hringir.) og átti að vera grundvöllur frumvarpsins. Ég hef ekki séð þennan grundvallarmun á milli frumvarpsins og skýrslu nefndarinnar.