151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

Hálendisþjóðgarður.

369. mál
[12:00]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta um.- og samgn. (Bergþór Ólason) (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Hönnu Katrínu Friðriksson fyrir svarið. Það var ekki meiningin að fella áfellisdóm yfir vinnu nefndarinnar með spurningu minni í þessu andsvari. En ég ítreka að það er eðlilegt að vinna nefndar sem þessarar skilji eftir lausa enda sem viðkomandi fagráðherra er ætlað að hnýta. En ég er sammála, það virðist hafa tekist býsna óhönduglega til á því tímabili. Ég ítreka þó að ég skil það sem svo að ráðherrann telji sig þegar hafa uppfyllt meira og minna allar þær kröfur sem settar eru fram í frávísunartillögunni.

En af því hv. þingmaður kom inn á samráð eða samráðsleysi — ég hef nú því miður notað orðið sýndarsamráð um margt af því sem fellt var undir þann hatt — þá rifjaðist upp fyrir mér setning úr ræðu minni hér áðan. Er ég þar að vísa beint í tiltekinn hagaðila án þess að ég nafngreini hann, þar sem ég sagði: Þegar hagaðilar lýsa sig sem fullbólusetta fyrir fagurgala um samráð og víðtæka sátt þá hefur eitthvað misfarist í ferlinu. Ég skynjaði það mjög sterkt; haldnir voru fundir, farið var á svæðin og allt í lagi með það, en viðbrögð við athugasemdunum skiluðu sér ekki inn í frumvarpið. Ég spyr hvort þingmaðurinn hafi svipaða skynjun á þessum samráðshluta málsins, því að mér þótti þetta mjög áberandi úti á landi. Er tilfinningin sambærileg hér á höfuðborgarsvæðinu?