Hálendisþjóðgarður.
Herra forseti. Já, það er þetta með samráðið. Það getur oft verið býsna flókið og fólk getur haft ólíka sýn á hvað það er, allt frá því að það fái tækifæri til að koma sjónarmiðum á framfæri í það að það fái tækifæri til þess að taka samtalið og lenda einhverju og yfir í það að tekið sé 100% tillit til þess sem fólk segir og hlutunum breytt. Einhvers staðar þar á milli þarf að lenda svona máli, í sátt og samlyndi. Ég upplifði þetta akkúrat svona, að samráðið fælist fyrst og fremst í einræðunni, í því að tala við okkur og segja hvernig þetta ætti að vera.
En svo hef ég ákveðna samúð með því þegar samráð er haft eða samtal er við fjölda aðila sem koma úr alls konar áttum, að menn komast ekki langt áleiðis ef alltaf á að taka beygjur og sveigjur út frá því sem hver og einn segir. Þannig að í svona málum skiptir forvinnan svo miklu máli, þ.e. að skilgreina nákvæmlega hvaða þættir það eru sem mestur ágreiningur ríkir um og sem mestu máli skiptir að lenda vel.
Við þurfum að átta okkur á hvað við viljum raunverulega fá út úr þessu og fækka flokkunum og forgangsraða svolítið í því hvaða samráð það er sem raunverulega skiptir máli. Af því að ég upplifði líka að það væri allt í graut. Ég ætla ekki að standa hér í pontu núna óundirbúin og tilgreina hvernig forgangsröðunin átti að vera, en það vantar svolítið upp á að átta sig á hvað það er sem mestu máli skiptir og að við lendum því. Út frá því kemur eitthvað annað sem við þurfum að skoða o.s.frv. Þannig að skortur á þessu — það er alla vega mín upplifun og ég hef verið býsna nátengd þessu máli — sannfærir mig meira en eitthvað annað um að það hafi ekki allir endilega verið heilir í því að klára þetta mál á þessu kjörtímabili. Af því að flest kunnum við nú ágætlega til verka ef ætlunin er að lenda máli.
Ég lít reyndar svo á að skilaboðin í frávísunartillögunni geti verið ágætisleiðarvísir inn í hnitmiðaðri vinnu á næsta kjörtímabili, hver svo sem niðurstaðan verður.